Fljótari en Bolt var á hans aldri Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. apríl 2026 09:30 Gout Gout er einn efnilegasti spretthlaupari sem hefur komið fram í lengri tíma. Honum hefur ósjaldan verið líkt við Usain Bolt. getty/Cameron Spencer Ástralska undrabarnið Gout Gout varð landsmeistari í tvö hundruð metra hlaupi um helgina. Tími hans er betri en sá tími sem Usain Bolt náði á sama aldri.
Gout hljóp á 19,67 sekúndum í gær og setti heimsmet í flokki tuttugu ára og yngri. Þetta er í fyrsta sinn sem Gout hleypur tvö hundruð metrana á undir tuttugu sekúndum. 18-year-old GOUT GOUT 🇦🇺 19.67s (1.7) over 200m at Australian Championships in Sydney!!🤯🤯A new U20 World Record ☑️National Record ☑️ First Australian man under 20 seconds ☑️A star is born!pic.twitter.com/1GTfFJ4gst— Track & Field Gazette (@TrackGazette) April 12, 2026 Tíminn sem hann náði í gær er betri en tími Bolts þegar hann var táningur. Bolt hljóp tvö hundruð metrana á 19,93 sekúndum fyrir 22 árum. Jamaíkumaðurinn var aðeins sautján ára þegar hann náði þessum tíma en bætti hann aldrei meðan hann var á táningsaldri. Bolt setti svo fjölda meta í fullorðinsflokki og varð meðal annars áttfaldur Ólympíumeistari. „Þetta er það sem ég hef beðið eftir,“ sagði Gout eftir hlaupið í gær. Tíminn sem hann náði þá er besti tími ársins í tvö hundruð metra hlaupi. Gout var ekki sá eini sem hljóp undir tuttugu sekúndum í tvö hundruð metra hlaupinu í gær. Aidan Murphy kom annar í mark á 19,88 sekúndum. „Við erum með svo stórkostlega íþróttamenn í Ástralíu og við gerum hvorn annan betri. Tveir Ástralir undir tuttugu sekúndum. Það er magnað,“ sagði Gout. „Þungu fargi er af mér létt vitandi að tíminn var löglegur og ég hafi hraða og líkama til að hlaupa svona. Mér líður afar vel og er tilbúinn í meira.“ Gout hafði áður hlaupið á 19,84 sekúndum en í meðvindi. Tíminn í gær var hins vegar fullkomlega löglegur.
Frjálsar íþróttir Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Sport Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Sjá meira