Ómar með fjórtán og Gísli skoraði alltaf Sindri Sverrisson skrifar 12. apríl 2026 16:29 Ómar Ingi Magnússon fór hamförum í dag. Getty/Igor Kralj Ómar Ingi Magnússon skoraði heil fjórtán mörk, úr aðeins sextán skotum, þegar Magdeburg styrkti enn stöðu sína á toppi þýsku 1. deildarinnar í handbolta í dag með 35-31 sigri gegn Erlangen.
Ómar skoraði átta af mörkunum af vítalínunni og var kominn með tíu mörk áður en fjörutíu mínútur voru liðnar af leiknum, þar af sjö úr vítum. Hann endaði eins og fyrr segir með fjórtán mörk og gaf auk þess þrjár stoðsendingar. Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki síðri með átta mörk úr jafnmörgum tilraunum, þar af ekkert af vítalínunni, og þrjár stoðsendingar. Elvar Örn Jónsson skoraði svo eitt mark og lét til sín taka í vörninni. Andri Már Rúnarsson var með fjögur mörk fyrir Erlangen. Magdeburg er nú með 52 stig á toppnum, eftir að hafa aðeins tapað einum af 28 leikjum sínum, og er sjö stigum á undan Flensburg sem kemur næst nú þegar aðeins sex umferðir eru eftir. Lærisveinar Arnórs nældu í stig Lærisveinar Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer gerðu vel í að krækja í stig gegn Stuttgart á heimavelli, með 25-25 jafntefli. Staðan var 13-10 gestunum í vil í hálfleik og þeir náðu mest fimm marka forskoti í seinni hálfleiknum en strákarnir hans Arnórs átu það forskot upp. Bergischer er því með 15 stig í 15. sæti, fjórum stigum frá fallsæti. Einar Þorsteinn Ólafsson, varnarmaðurinn öflugi, var svo í liði Hamburg sem tapaði á heimavelli gegn stórliði Kiel, 34-27, eftir að hafa verið fimm mörkum undir í hálfleik, 19-14. Einar var ekki á meðal markaskorara í leiknum en fékk eina brottvísun.
Þýski handboltinn Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira