Stjarnan einum sigri frá því að halda sér uppi Sindri Sverrisson skrifar 11. apríl 2026 19:39 Stjörnumenn eru komnir í þægilega stöðu í baráttunni um að halda sér í Olís-deildinni. vísir/Anton Stjörnumenn þurfa núna aðeins einn sigur til þess að halda sér áfram í Olís-deild karla í handbolta, eftir að hafa sótt 24-21 sigur gegn Herði til Ísafjarðar í kvöld.
Stjarnan vann fyrsta leik einvígisins á heimavelli af öryggi og er því 2-0 yfir en vinna þarf þrjá leiki til að vinna einvígið. Stjörnumenn enduðu í næstneðsta sæti Olís-deildarinnar og fóru því í umspil með þremur liðum úr Grill 66-deildinni. Þar slógu þeir Fjölni út, eftir tap í fyrsta leik, á meðan að Hörður vann Gróttu 2-0. Fyrir umspilið lét Stjarnan þjálfarann Hrannar Guðmundsson fara og tóku þeir Tandri Már Konráðsson og Sverrir Eyjólfsson þá við liðinu út tímabilið. Þeim virðist nú ætla að takast að halda Stjörnunni í hópi þeirra bestu. Stjarnan hafði yfirhöndina nær allan leikinn í kvöld og var 13-9 yfir í hálfleik. Heimamenn voru aldrei langt undan og minnkuðu muninn í tvö mörk þegar enn voru rúmar þrjár mínútur eftir, en komust ekki nær. Ísak Logi Einarsson var langmarkahæstur hjá Stjörnunni með 11 mörk en Jose Esteves Lopes Neto skoraði sex mörk fyrir Hörð. Þriðji leikur liðanna, og möulega sá síðasti, verður í Garðabæ á miðvikudagskvöld klukkan 18:30.
Olís-deild karla Stjarnan Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Enski boltinn Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Fótbolti Fleiri fréttir „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Sjá meira