Handbolti

Ó­trú­legt flug undir stjórn Guð­jóns og Haukur bjó til helming marka Löwen

Sindri Sverrisson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson er á stórkostlegu flugi með Gummersbach.
Guðjón Valur Sigurðsson er á stórkostlegu flugi með Gummersbach. Getty/Michael Hundt

Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach hafa vakið verðskuldaða athygli í þýska handboltanum í vetur. Þeir unnu í kvöld sinn tíunda sigur í röð og það af gríðarlegu öryggi. Haukur Þrastarson var í algjöru aðalhlutverki í leik gegn Flensburg.

Gummersbach vann lærisveina Rúnars Sigtryggssonar í Wetzlar á heimavelli í dag, 32-24, og heldur því sigurgöngu sinni áfram en liðið hefur ekki tapað síðan 14. desember, þegar það tapaði með einu marki gegn toppliði Magdeburg.

Gummersbach er nú með 41 stig í 4. sæti deildarinnar, eftir 27 leiki, aðeins stigi á eftir Füchse Berlín og fjórum á eftir Flensburg sem hefur leikið 28 leiki. Liðið er nú fjórum stigum á undan stórveldi Kiel sem er í 5. sæti.

Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach í dag og Teitur Örn Einarsson eitt. Liðið var 17-8 yfir í hálfleik og sigurinn aldrei í hættu eftir það. Ludvig Hallbäck var markahæstur með níu mörk. 

Rúnar er með Wetzlar í fallsæti sem stendur, með 11 stig í næstneðsta sæti, en aðeins stigi á eftir Minden og þremur á eftir Bergischer þegar sex umferðir eru eftir.

Haukur langefstur eftir tíu stoðsendingar

Fyrr í dag var Haukur Þrastarson í miklum ham með Rhein-Neckar Löwen gegn Flensburg en varð þó að sætta sig við þriggja marka tap, 36-33, á heimavelli.

Haukur kom að meira en helmingi marka Löwen því hann átti heilar tíu stoðsendingar og skoraði svo sjálfur sjö mörk, úr þrettán skotum. Hann var næstmarkahæstur en með langflestar stoðsendingar eins og svo oft í vetur.

Haukur er langefstur á lista yfir flestar stoðsendingar á leiktíðinni því hann hefur átt 159, eða 30 fleiri en næsti maður, Marian MIchalczik hjá Hannover. Gísli Þorgeir Kristjánsson er svo með 126 stoðsendingar í 3. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×