Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Rakel Sveinsdóttir skrifar 11. apríl 2026 10:00 Lilja Kristín Birgisdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum, segir það setja besta taktinn fyrir daginn að dansa heima hjá sér á morgnana. Enda er það tónlistin sem er allsráðandi strax og vaknað er. Vísir/Vilhelm Lilja Kristín Birgisdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum, viðurkennir að fara alltof seint að sofa. Hundurinn sér síðan um að koma henni fram úr um sex leytið. Synirnir eru ekkert alltof hrifnir af því að foreldrarnir byrji daginn með dansi.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég vakna oftast í kringum 6:00 en það er alfarið hundinum að þakka sem tekur hlutverk vekjaraklukku mjög alvarlega. Ég er þó farin að kunna vel að meta þetta, það er eitthvað gott við að ná smá forskoti á daginn áður en allt fer á fullt.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég byrja daginn á að hleypa litla „dýragarðinum“ út, hundinum og kettinum og kveiki svo á kaffivélinni. Svo tekur við verkefnið að vekja strákana okkar tvo. Það kemur þeim alltaf jafn mikið á óvart að þeir þurfi að vakna á virkum dögum fyrir skóla, sem flestir foreldrar tengja líklega við. Tónlist er svo það sem kveikir almennilega á deginum hjá okkur fjölskyldunni. Strákarnir okkar eru ekki alveg jafn hrifnir af því með hækkandi aldri að sjá foreldra sína dansandi svona snemma morguns í eldhúsinu, en að dansa inn í daginn setur oft besta taktinn fyrir daginn.“ Hversu mikið / lítið átti páskamálshátturinn þinn í ár við þig? „Þeir fá byr sem bíða“ var málshátturinn í ár. Ég tengi vel við það, þó ég sé klárlega frekar hröð í mér og vil keyra hluti áfram þá hef ég lært með árunum hvað þolinmæði er mikill styrkleiki. Sérstaklega í stærri verkefnum þar sem hlutir þurfa tíma til að þróast og lokaútkoman verður sterkari fyrir vikið.“ Lilja notar sunnudagana til að núllstilla sig og búa sig undir komandi vinnuviku. Lilja mælir með þeirri aðferð að grípa hugmyndir um leið og þær koma og skrifa niður. Það gerist sjaldnast þegar fólk situr kyrrt og því eigi þær til að gleymast nema þær séu fangaðar strax.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Ég er að vinna að nokkrum lykilverkefnum þessa dagana. Til dæmis áframhaldandi þróun og uppbyggingu á vörumerkinu Takk, nýju vildarkerfi Haga. Í því verkefni er markmiðið að skilja þarfir viðskiptavina og sníða þjónustu og vöruval enn betur að þeim og skila raunverulegu virði í daglegum innkaupum. „Samhliða því vinn ég að vörumerkjamálum nýrrar rekstrareiningar, Haga miðla, þar sem við erum að þróa nýjar leiðir til miðlunar í verslun í gegnum smásölumiðlun, sem er einn hraðast vaxandi auglýsingamiðill í heiminum í dag. Það er sjaldan bara eitt verkefni í gangi og enginn dagur alveg eins sem er stór hluti af því sem gerir starfið svona skemmtilegt. Persónulegra verkefni þessa dagana er svo að fara að koma mér aftur í hlaupagírinn fyrir sumarið. Sem betur fer var nýlega stofnaður hlaupahópur hjá Högum sem gerir það aðeins auðveldara.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Ég hef vanið mig á að nota sunnudaga sem „reset“ fara yfir vikuna fram undan, stilla fókus og forgangsraða. Það gerir það að verkum að ég byrja vikuna með skýrari stefnu í stað þess að elta daginn. Í framhaldi af því forgangsraða ég deginum snemma, yfir fyrsta morgunbolla, áður en hann fer almennilega af stað. Þá næ ég að halda yfirsýn og ákveða hvað á að fá athygli hverju sinni, sem skiptir miklu þegar dagarnir fyllast hratt. Ég grínast oft með það að nútíma markaðsmanneskja þurfi að vera með meistaragráðu í multitasking, en fyrir mér snýst þetta minna um að gera allt í einu og meira um að forgangsraða rétt og halda fókus. Og svo er eitt sem er algjör leikbreytir, það að grípa hugmyndir þegar þær koma og skrifa þær strax niður. Bestu hugmyndirnar koma sjaldnast þegar maður situr kyrr við tölvuna, heldur frekar á hreyfingu eða á milli funda þannig að ég reyni alltaf að ná þeim niður áður en þær hverfa aftur.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Alltof seint, ef ég á að vera hreinskilin. Ég á erfitt með að slökkva alveg á deginum. Það er alltaf eitthvað sem mig langar frekar að gera en að fara að sofa, hvort sem það eru heima stefnumót, góður lestur, smá skroll eða eitthvað að horfa á. Ég er líklega blanda af kvöld og morgun manneskju, sem er kannski ekki alveg besta samsetningin en virkar einhvern veginn.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga og Öryggisgirðinga, segir það alltof gott að snúsa á morgnana. Reglulega reynir hann þó að fara í átak, vakna klukkan 06.30 og skella sér í ræktina áður en hann fer að vinna. Síðan hefst snúsið á ný. 4. apríl 2026 10:02 „Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ Erla Ásgeirsdóttir, stjórnarkona og tilvonandi frumkvöðull, segir nátthrafnana á heimilinu oft halda vöku fyrir þeim hjónum. En þarf þó að viðurkenna á sig að vaka stundum of lengi við að horfa á sjónvarpið uppi í rúmi eða hlusta á Storytel. 28. mars 2026 10:02 „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, segir morgnana frekar einfalda rútínu en viðurkennir að fara of seint að sofa. Þá kalli á að horfa á íþróttir eða ókláraðan þátt. Hetjur úr gömlum bíómyndum eru annars vegar einn grjótharður og hins vegar einn létt geggjaður. 14. mars 2026 10:00 Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, er snúsari og hæg í gang á morgnana en mjög góð í að segja brandara. Oft sofnar hún með dóttur sinni rétt fyrir klukkan tíu á kvöldin, en í þau skipti sem hún nær að vaka fram yfir þann tíma getur allt gerst: Kvöldin eru besti tíminn! 21. mars 2026 10:02 „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi. 28. febrúar 2026 10:02 Mest lesið Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Viðskipti innlent Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Satt eða logið: Nýjar áskoranir fyrir neytendur og auglýsendur „Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ „Svona samtöl snúast ekki um að skamma fólk fyrir fjarvistir“ „Mér er drull um vinnustað sem er drull um mig“ Það er enginn aumingjaskapur að halda ekki fókus Er sjálf besti leikmaðurinn: „Ég þurfti að gúggla mörkin hans“ Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Réttu tækifærin opnuðust þegar sumarstarfsmaður var ráðinn sem sendill „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Þegar óvissa vegna breytinga vofir yfir í langan tíma Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Í röngu starfi og vansæl Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og viðkvæmu samtölin „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ „Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan“ Sjá meira
Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga og Öryggisgirðinga, segir það alltof gott að snúsa á morgnana. Reglulega reynir hann þó að fara í átak, vakna klukkan 06.30 og skella sér í ræktina áður en hann fer að vinna. Síðan hefst snúsið á ný. 4. apríl 2026 10:02
„Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ Erla Ásgeirsdóttir, stjórnarkona og tilvonandi frumkvöðull, segir nátthrafnana á heimilinu oft halda vöku fyrir þeim hjónum. En þarf þó að viðurkenna á sig að vaka stundum of lengi við að horfa á sjónvarpið uppi í rúmi eða hlusta á Storytel. 28. mars 2026 10:02
„Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, segir morgnana frekar einfalda rútínu en viðurkennir að fara of seint að sofa. Þá kalli á að horfa á íþróttir eða ókláraðan þátt. Hetjur úr gömlum bíómyndum eru annars vegar einn grjótharður og hins vegar einn létt geggjaður. 14. mars 2026 10:00
Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, er snúsari og hæg í gang á morgnana en mjög góð í að segja brandara. Oft sofnar hún með dóttur sinni rétt fyrir klukkan tíu á kvöldin, en í þau skipti sem hún nær að vaka fram yfir þann tíma getur allt gerst: Kvöldin eru besti tíminn! 21. mars 2026 10:02
„Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi. 28. febrúar 2026 10:02