Álvarez reyndi að herma eftir Messi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2026 17:46 Julián Álvarez fagnar marki sínu á móti Barcelona í gærkvöldi en það var af betri gerðinni. Getty/Jose Breton Julián Álvarez skoraði frábært aukaspyrnumark fyrir Atlético Madrid í Meistaradeildinni í gærkvöldi en eftir leikinn talaði hann um að hafa þar reynt að leika eftir tilþrif argentínska liðsfélaga síns, Lionel Messi.
Argentínski landsliðsmaðurinn skrúfaði aukaspyrnu í efra hornið rétt fyrir hálfleik og kom Atlético Madrid yfir gegn Barcelona í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Lið Diego Simeone vann fyrri leikinn 2-0, en Alexander Sørloth skoraði annað mark gestanna. Hefur horft á mark Messi „Ég hef horft á mark Messi gegn Liverpool [í maí 2019] hér [á Nývangi] nokkrum sinnum, en ég var ekki alveg viss um að boltinn færi í nákvæmlega það horn,“ sagði Julián Álvarez Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. „Þegar maður hittir boltann, þá áttar maður sig á því, og jafnvel áður en ég sparkaði var ég þegar nokkuð viss. Við vorum að æfa okkur í gær og ég hafði ekki skorað úr einni einustu sókn. Í dag var það sem skipti máli,“ sagði Álvarez. Með aukaspyrnunni hefur hann skorað átján mörk á tímabilinu en framherjinn, sem er með samning við Atlético til júní 2030, hefur verið orðaður við Barcelona en einnig er slúðrað um að Arsenal væri einnig að íhuga að gera tilboð í framherjann. Hins vegar hefur forseti Atlético, Enrique Cerezo, varað þá sem hafa áhuga á Julián Álvarez við því að hann muni ákveða hvenær leikmaðurinn yfirgefur félagið. Álvarez, sem gekk til liðs við Atlético fyrir 75 milljónir evra frá Manchester City árið 2024, er talinn vera draumakaup fyrir Joan Laporta, forseta Barcelona. Þegar hann var spurður hvort hann gæti tryggt að argentínski landsliðsmaðurinn myndi spila fyrir Atlético á næsta tímabili, svaraði Cerezo í léttum tón: „Getur þú tryggt að þú munir ekki deyja fyrir lok ársins?“ Álvarez sagðist á meðan einbeita sér að nútíðinni. Mikilvægasti hluti tímabilsins er fram undan „Ég er í góðu formi um þessar mundir. Mér líður frábærlega og mikilvægasti hluti tímabilsins er fram undan. Við þurfum að halda áfram að leggja hart að okkur því það eru stórkostlegir hlutir í vændum,“ sagði Álvarez. Þrátt fyrir sigurinn er Álvarez enn varkár fyrir seinni leikinn í átta liða úrslitunum á Metropolitano í næstu viku. „Þetta er ekki búið enn. Við vitum hvers konar lið þeir eru. Sannleikurinn er sá að við höfum yfirhöndina og við þurfum að nýta okkur heimavöllinn,“ sagði Álvarez.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira