Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. apríl 2026 12:00 Helga Þórðardóttir segir hlustað á nemendur jafnvel þó tillögunni hafi verið vísað frá. Vísir/Vilhelm Það er ekki hlutverk grunnskóla að kenna nemendum sjálfsvörn að mati formanns skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar. Tillögu ungmenna um innleiðingu kennslu sjálfsvarnar á unglingastigi var vísað frá en formaðurinn segir statt og stöðugt unnið að því að efla forvarnir.
Greint var frá því í Morgunblaðinu í dag að ungmennaráð Kjalarness hefði lagt fram tillögu í skóla-og frístundaráði Reykjavíkurborgar um að innleiða sjálfsvarnarkennslu í grnunskólum fyrir nemendur á unglingastigi í ljósi aukinnar ofbeldishegðunar ungs fólks, vopnaburðs og tilfellum þar sem slagsmál eru tekin upp og myndböndum dreift á samfélagsmiðlum. Tillögunni var vísað frá en Helga Þórðardóttir formaður ráðsins og oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn segir kennslu í sjálfsvörn ekki hluta af aðalnámskrá grunnskóla. „Hins vegar er þetta fín tillaga og sjálfsagt að nemendur fái kennslu í grunnþáttum sjálfsvarnar, en við teljum það hinsvegar ekki okkar hlutverk að innleiða þetta í öllum skólum Reykjavíkur.“ Nemendur geti nýtt sér frístundastyrk í sjálfsvarnarkennslu Hún segist gera sér grein fyrir því að það beri á auknu ofbeldi í samfélaginu og ráðamenn hafi gert sitt til að bregðast við því. Stýrihópur hafi komið með tillögur að úrbótum á forvörnum gegn ofbeldi í desember. „Hluti af því til dæmis er að efla félagsmiðstöðvar þar sem félagsfærni nemenda er styrkt og við vorum til dæmis á þessum fundi að lengja opnunartíma félagsmiðstöðva og það er fjöldi annarra tillagna sem er í vinnslu.“ Þannig hafi auk þess verið gerðar breytingar á frístundastyrk sem Helga segir sem dæmi hægt að nýta sér í námskeið í sjálfsvörn. Hún segir ráðamenn svo sannarlega hlusta á nemendur, jafnvel þó þessari tilteknu tillögu hafi verið vísað frá. Það sé verkefni alls samfélagsins að kveða niður ofbeldi. Það er ekki á hverjum degi sem fréttir berast af því að ungmenni vilji fá kennslu í sjálfsvörn, finnst þér það áhyggjuefni? „Nei mér finnst það ekkert áhyggjuefni, ég hef skilning fyrir því og þess vegna vil ég benda þeim á leiðir, hvað er hægt að gera. Auðvitað er það áhyggjuefni að það sé ofbeldi en mér finnst frábært að ungmenni sé að benda okkur á eitthvað sem er hægt að gera.“
Ofbeldi barna Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Sjá meira