„Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Lovísa Arnardóttir skrifar 4. apríl 2026 17:10 Einhverjir hafa þurft að flýja bústaðinn vegna vatnsleysis. Myndin er úr safni. Vísir/Pjetur Vatnslaust hefur verið síðustu daga í sumarhúsabyggð í Úthlíð en vatnsbólið er nánast tómt. Einhverjir hafa þurft að flýja vegna vatnsleysisins. Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir sumarhúsaeigendur hafa fengið tilkynningu á fimmtudag en hún mögulega farið fram hjá mörgum. „Við gátum ekki vaskað upp, ekki farið í sturtu og varla á klósettið,“ segir einn í ábendingu til Vísis. Hann þurfti að flýja bústaðinn sem hann hafði leigt um páskana fyrir fjölskylduna. Hann segir vatnsleysið hafa verið rætt meðal sumarhúsaeigenda í lokuðum hóp og fáir hafi vitað af yfirvofandi vatnsleysi. Hvött til að nota ekki pottinn Í tilkynningu á vef Veitna segir í nýjustu tilkynningu frá klukkan 9.55 í morgun að einhver hús séu með vatn á meðan notkun sé lítil. Það megi búast við því að aftur verði vatnslaust þegar notkun eykst. „Mjög mikilvægt er að þau sem eru með varmaskipta láti ekki renna í heitu pottana hjá sér, því þeir nota þá mikið af upphituðu köldu vatni,“ segir í tilkynningu Veitna. Í tveimur tilkynningum í gær kom fram að lágur þrýstingur væri á kalda vatninu í Úthlíð í Bláskógabyggð vegna lágrar vatnsstöðu í vatnsbólinu en klukkan 19.45 í gærkvöldi kom fram í tilkynningu að vatnsbólið væri nánast tómt. „Þau sem eru með varmaskipti eru þess vegna líka heitavatnslaus. Mikilvægt: Að ekki sé látið renna í heita potta þar sem eru varmaskiptar. Þar er notað kalt vatn sem verður að fara sparlega með,“ sagði í tilkynningunni og fólk hvatt til þess að fara sparlega með vatn um páskana. Vatnsbólið að tæmast Silja segir í samtali við Vísi að langvarandi þurrkar hafi gert það að verkum að staðan á vatnstökusvæðinu fyrir Úthlíð sé lág. Vatnsbólið fyrir Úthlíð liggi hátt og þýðan hafi ekki náð þangað. „Það hefur verið svakalega lítil úrkoma í vetur. Í janúar og febrúar var úrkoman svona 14 prósent af meðaltali síðustu fimmtán ára,“ segir Silja og að í nóvember og desember hafi úrkoman sömuleiðis verið mjög lítil. „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast,“ segir hún. Hún segir Veitur hafa leitað til Bláskógabyggðar eftir vatni en þau séu ekki aflögufær eins og það. Það sé svo lítið vatn á svæðinu. Tilkynning sem ekki barst leigjendum Hún segir Veitur hafa sent út tilkynningu á fimmtudag þegar þau sáu að notkunin var orðin mjög mikil en margir bústaðir séu í eigu stéttarfélaga og tilkynningar hafi mögulega ekki þannig borist leigjendum. Starfsmenn stéttarfélaga hafi líklega verið komnir í páskafrí. „Því miður, þetta breytist ekki næstu daga. Við báðum fólk að fara sparlega með kalda vatnið. Það er hitaveita á svæðinu en vatnið þar er svo svakalega heitt, það eru margir með varmaskipta og nota kalt vatn líka. Þá er notkunin meiri en vatnsbólið ræður við. Það er því miður þannig ekkert sem við getum gert í þessu. Vatnsbólin eru öll mjög háð veðri.“ Á vef Veitna segir að til að bæta þrýsting á vatninu fyrir öll er óskað eftir því að gestir á svæðinu fari vel með kalda vatnið: Nota sturtuna, en hafa hana styttri Láta ekki kalda vatnið renna viðstöðulaust að óþörfu Nota spartakkann á klósettinu þegar það dugar Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Vatn Bláskógabyggð Páskar Vatnsból Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
„Við gátum ekki vaskað upp, ekki farið í sturtu og varla á klósettið,“ segir einn í ábendingu til Vísis. Hann þurfti að flýja bústaðinn sem hann hafði leigt um páskana fyrir fjölskylduna. Hann segir vatnsleysið hafa verið rætt meðal sumarhúsaeigenda í lokuðum hóp og fáir hafi vitað af yfirvofandi vatnsleysi. Hvött til að nota ekki pottinn Í tilkynningu á vef Veitna segir í nýjustu tilkynningu frá klukkan 9.55 í morgun að einhver hús séu með vatn á meðan notkun sé lítil. Það megi búast við því að aftur verði vatnslaust þegar notkun eykst. „Mjög mikilvægt er að þau sem eru með varmaskipta láti ekki renna í heitu pottana hjá sér, því þeir nota þá mikið af upphituðu köldu vatni,“ segir í tilkynningu Veitna. Í tveimur tilkynningum í gær kom fram að lágur þrýstingur væri á kalda vatninu í Úthlíð í Bláskógabyggð vegna lágrar vatnsstöðu í vatnsbólinu en klukkan 19.45 í gærkvöldi kom fram í tilkynningu að vatnsbólið væri nánast tómt. „Þau sem eru með varmaskipti eru þess vegna líka heitavatnslaus. Mikilvægt: Að ekki sé látið renna í heita potta þar sem eru varmaskiptar. Þar er notað kalt vatn sem verður að fara sparlega með,“ sagði í tilkynningunni og fólk hvatt til þess að fara sparlega með vatn um páskana. Vatnsbólið að tæmast Silja segir í samtali við Vísi að langvarandi þurrkar hafi gert það að verkum að staðan á vatnstökusvæðinu fyrir Úthlíð sé lág. Vatnsbólið fyrir Úthlíð liggi hátt og þýðan hafi ekki náð þangað. „Það hefur verið svakalega lítil úrkoma í vetur. Í janúar og febrúar var úrkoman svona 14 prósent af meðaltali síðustu fimmtán ára,“ segir Silja og að í nóvember og desember hafi úrkoman sömuleiðis verið mjög lítil. „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast,“ segir hún. Hún segir Veitur hafa leitað til Bláskógabyggðar eftir vatni en þau séu ekki aflögufær eins og það. Það sé svo lítið vatn á svæðinu. Tilkynning sem ekki barst leigjendum Hún segir Veitur hafa sent út tilkynningu á fimmtudag þegar þau sáu að notkunin var orðin mjög mikil en margir bústaðir séu í eigu stéttarfélaga og tilkynningar hafi mögulega ekki þannig borist leigjendum. Starfsmenn stéttarfélaga hafi líklega verið komnir í páskafrí. „Því miður, þetta breytist ekki næstu daga. Við báðum fólk að fara sparlega með kalda vatnið. Það er hitaveita á svæðinu en vatnið þar er svo svakalega heitt, það eru margir með varmaskipta og nota kalt vatn líka. Þá er notkunin meiri en vatnsbólið ræður við. Það er því miður þannig ekkert sem við getum gert í þessu. Vatnsbólin eru öll mjög háð veðri.“ Á vef Veitna segir að til að bæta þrýsting á vatninu fyrir öll er óskað eftir því að gestir á svæðinu fari vel með kalda vatnið: Nota sturtuna, en hafa hana styttri Láta ekki kalda vatnið renna viðstöðulaust að óþörfu Nota spartakkann á klósettinu þegar það dugar Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Vatn Bláskógabyggð Páskar Vatnsból Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira