„Íran mun spila á HM“ Valur Páll Eiríksson skrifar 31. mars 2026 17:30 Infantino segir að Íran muni spila á HM og gera það í Bandaríkjunum. John Todd/ISI/Getty Images Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, segir að Íran muni taka þátt á komandi heimsmeistaramóti og spila leiki sína í Bandaríkjunum.
Mikil óvissa hefur ríkt um þátttöku Írans og spurningar um hvar liðið spili leiki á mótinu, taki það þátt. Allir þrír leikir liðsins eiga að fara fram í Bandaríkjunum en í ljósi þess að Bandaríkin réðust á Íran ásamt Ísrael hafa ráðamenn í írönskum fótbolta útilokað að spila í Bandaríkjunum í sumar. Íranska knattspyrnusambandið hóf viðræður við yfirvöld í Mexíkó um að færa leiki liðsins þangað, frá Bandaríkjunum. Kanadísk stjórnvöld hafa einnig boðist til að halda leiki Írans, þurfi á því að halda. Sömuleiðis hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti sagt ólíklegt að Íran spili í Bandaríkjunum næsta sumar. Skömmu eftir að Infantino sagði síðast að Íran myndi spila leikina þar í landi sagði Trump þveröfugt örfáum dögum síðar og hvatti Írana til að halda sig fjarri. Nú hefur Infantino aftur sagt það liggja fyrir að Íran spili leiki sína á fyrirhuguðum stað í Bandaríkjunum. „Íran verður á HM“, sagði Infantino við AFP-fréttastofuna. „Við erum hæstánægð því þeir eru með mjög sterkt lið. Ég er mjög glaður. Leikirnir fara fram þar sem þeir eiga að vera, samkvæmt drættinum,“ segir Infantino og á þar við um staðsetningarnar í Bandaríkjunum. Íran spilar alla þrjá leiki liðsins í Bandaríkjunum; við Nýja-Sjáland og Belgíu í Los Angeles 15. og 21. júní og við Egyptaland í Seattle 26. júní. Áhugavert verður að sjá hvernig írönsk yfirvöld annars vegar og Donald Trump hins vegar bregðast við yfirlýsingu Infantino í þetta skiptið.
HM 2026 í fótbolta FIFA Tengdar fréttir „Við sniðgöngum Bandaríkin en ekki HM“ Íranska knattspyrnusambandið heldur sig við áætlanir um að taka þátt í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í Norður-Ameríku í sumar þrátt fyrir árásir Bandaríkjanna á landið. 19. mars 2026 17:48 FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, virðist hafa útilokað að leikir Írans á heimsmeistaramótinu í sumar verði færðir frá Bandaríkjunum til Mexíkó. 17. mars 2026 18:16 Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Enn ríkir óvissa um þátttöku landsliðs Írans á HM karla í fótbolta í sumar. Knattspyrnusamband landsins á í viðræðum við yfirvöld í Mexíkó um að spila leiki liðsins þar, fremur en í Bandaríkjunum. 17. mars 2026 11:02 Yfirlýsing íranska landsliðsins: „Enginn getur bannað okkur að fara á HM“ Leikmenn íranska karlalandsliðsins í fótbolta hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir segja að enginn geti bannað þeim að keppa á HM 2026. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að ef til vill væri betra að Íranir héldu sig heima þegar HM fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. 14. mars 2026 11:00 Utan vallar: Hjákátleg yfirlýsing í skugga stríðs Gianni Infantino, forseti FIFA, segir Donald Trump Bandaríkjaforseta hafa fullvissað sig um að landslið Írans sé velkomið til Bandaríkjanna á HM í sumar og að mótið muni sameina heiminn. Orð hans virka hjákátleg á meðan gestgjafinn ræðst á eitt þátttökuríkjanna og útilokar stuðningsmenn frá því að sjá þar leiki. 11. mars 2026 11:30 Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Útlit er fyrir að Íran segi sig úr heimsmeistaramóti karla í fótbolta í sumar sökum árása Bandaríkjanna og Ísraels. Það yrðu söguleg tíðindi og sagnfræðingur segir stöðuna geta orðið vandræðalega fyrir FIFA. 7. mars 2026 11:03 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Fleiri fréttir Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Sjá meira
„Við sniðgöngum Bandaríkin en ekki HM“ Íranska knattspyrnusambandið heldur sig við áætlanir um að taka þátt í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í Norður-Ameríku í sumar þrátt fyrir árásir Bandaríkjanna á landið. 19. mars 2026 17:48
FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, virðist hafa útilokað að leikir Írans á heimsmeistaramótinu í sumar verði færðir frá Bandaríkjunum til Mexíkó. 17. mars 2026 18:16
Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Enn ríkir óvissa um þátttöku landsliðs Írans á HM karla í fótbolta í sumar. Knattspyrnusamband landsins á í viðræðum við yfirvöld í Mexíkó um að spila leiki liðsins þar, fremur en í Bandaríkjunum. 17. mars 2026 11:02
Yfirlýsing íranska landsliðsins: „Enginn getur bannað okkur að fara á HM“ Leikmenn íranska karlalandsliðsins í fótbolta hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir segja að enginn geti bannað þeim að keppa á HM 2026. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að ef til vill væri betra að Íranir héldu sig heima þegar HM fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. 14. mars 2026 11:00
Utan vallar: Hjákátleg yfirlýsing í skugga stríðs Gianni Infantino, forseti FIFA, segir Donald Trump Bandaríkjaforseta hafa fullvissað sig um að landslið Írans sé velkomið til Bandaríkjanna á HM í sumar og að mótið muni sameina heiminn. Orð hans virka hjákátleg á meðan gestgjafinn ræðst á eitt þátttökuríkjanna og útilokar stuðningsmenn frá því að sjá þar leiki. 11. mars 2026 11:30
Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Útlit er fyrir að Íran segi sig úr heimsmeistaramóti karla í fótbolta í sumar sökum árása Bandaríkjanna og Ísraels. Það yrðu söguleg tíðindi og sagnfræðingur segir stöðuna geta orðið vandræðalega fyrir FIFA. 7. mars 2026 11:03