Tvítug knattspyrnukona lést Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. mars 2026 09:03 Alexandra Wimmer var leikmaður austurríska félagsins FC Blau-Weiß Linz. @blauweisslinz Austurríska knattspyrnukonan Alexandra Wimmer lést á fimmtudagsmorgun í hörmulegu umferðarslysi í heimalandinu. Hún var aðeins tuttugu ára gömul.
Slysið átti sér stað í Mona-Lisa-göngunum í Linz í Austurríki. Þessi vegarkafli er hluti af Ebelsberg-hraðbrautinni og lykilþáttur í umferðarkerfinu í austurhluta borgarinnar. Bíll knattspyrnukonunnar rann af óþekktum ástæðum yfir á ranga akgrein og endaði framan á vörubíl. Áreksturinn var svo mikill að bíllinn valt og endaði á hliðinni. „Þó að slökkviliðsmenn hafi náð konunni úr flakinu með þungum tækjum tókst þeim ekki að bjarga lífi hennar. Þrátt fyrir að endurlífgun hæfist strax lést Alexandra Wimmer á vettvangi af sárum sínum,“ segir í frétt hjá salzburg24.at. Fimmtán ára farþegi sem var með knattspyrnukonunni slasaðist og var fluttur á sjúkrahús. Vörubílstjórinn, sem er 56 ára gamall, slasaðist ekki. Alexandra Wimmer var leikmaður austurríska félagsins FC Blau-Weiß Linz en hafði komið við sögu hjá öðrum félögum. „Við erum orðlaus og í miklu áfalli. Þú varst alltof ung, þú áttir allt lífið framundan. Bros þitt og orka munu fylgja okkur að eilífu. Þú varst ekki bara liðsfélagi heldur líka mjög mikilvægur hluti af félaginu okkar. Það er næstum ómögulegt að lýsa með orðum hversu mikið við munum sakna þín,“ skrifaði Union Kleinmünchen í kveðjupósti sínum. Óvænt andlát tuttugu ára gömlu leikkonunnar olli einnig mikilli sorg í heimabæ hennar. „Sem ástríðufull íþróttakona og frábær manneskja mun Alex að eilífu lifa í minningum okkar,“ sagði SC Raika Golling, þar sem Wimmer hóf knattspyrnuferil sinn sjö ára gömul. View this post on Instagram A post shared by FC Blau-Weiß Linz / Kleinmünchen (@fcblauweisslinz_kleinmuenchen)
Fótbolti Mest lesið Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Fótbolti Orri á skotskónum Fótbolti Russell á ráspól í Kanada Formúla 1 Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Handbolti Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Íslenski boltinn Kane með þrennu í úrslitaleik Fótbolti Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Formúla 1 Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Formúla 1 Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Handbolti Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Enski boltinn Fleiri fréttir Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Kane með þrennu í úrslitaleik Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Slæm stjórnartíð Steve Cooper tekur enda Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Ef vængirnir eru úr vaxi þá bráðna þeir“ Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann „Við réðum ekkert við þá“ „Hefðum getað skorað fleiri“ „Ánægður með þá sem komu inn í liðið“ „Mér fannst vanta upp á orkustigið“ Sara Björk kveður Sádi-Arabíu „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Uppgjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigurmark Róberts færir Fram nær toppnum Sjá meira