Kostnaður við útför Davíðs var fimm milljónir króna Jakob Bjarnar skrifar 27. mars 2026 14:59 Líkmenn voru þeir Haraldur Johannessen, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Þórarinn Eldjárn, Kjartan Gunnarsson, Eiríkur Jónsson, Þórólfur Gíslason, Albert Jónsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson og Ásgeir Jónsson. vísir/vilhelm Útför Davíðs Oddssonar, sem var gerð frá Hallgrímskirkju 8. þessa mánaðar, var opinber. Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu kostaði útförin um 4,9 milljónir króna en þess má geta að Reykjavíkurborg lagði til aðstöðu á Kjarvalsstöðum án gjalds en þar fór erfidrykkjan fram.
Eins og Vísir greindi ítarlega frá var útför Davíðs Oddssonar, fyrrverandi borgarstjóra, forsætisráðherra og ritstjóra Morgunblaðsins, einkar vel úr garði gjör. Í verklagsreglum forsætisráðuneytisins um opinberar útfarir er slíkar athafnir viðhafðar við andlát forseta Íslands og forsætisráðherra, bæði núverandi og fyrrverandi, að höfðu samráði við fjölskyldu hins látna. Þá getur ríkisstjórn ákveðið, ef svo ber undir í sérstökum tilvikum, að útför fari fram á vegum ríkisins. Vísir spurði talsmenn ráðuneytisins hvort þar innan dyra væri hægt að gera ráð fyrir því að slíkum útförum fari fjölgandi en var tjáð að eðli máls samkvæmt er ekki hægt að áætla fjölda slíkra athafna á næstu árum. En fram kom að með skýrum verklagsreglum og ferlum er forsætisráðuneytið vel undirbúið þegar kemur að framkvæmd opinberra útfara. Yfirlit yfir útfarir á vegum ríkisins á lýðveldistímum er eftirfarandi en vert að fram komi að listinn* byggir á leit í málaskrá og á tímarit.is og því gætu tilfellin verið fleiri. Forsetar • Sveinn Björnsson (lést í embætti), útför í febrúar 1952 • Ásgeir Ásgeirsson, útför í september 1972 • Kristján Eldjárn, útför í september 1982 Forsætisráðherrar • Sigurður Eggerz, útför í nóvember 1945 • Ólafur Thors, útför í janúar 1965 • Steingrímur Steinþórsson, útför í nóvember 1966 • Bjarni Benediktsson (lést í embætti), útför í júlí 1970 • Hermann Jónasson, útför í janúar 1976 • Jóhann Hafstein, útför í maí 1980 • Stefán Jóhann Stefánsson, útför í október 1980 • Gunnar Thoroddsen, útför í september 1983 • Ólafur Jóhannesson, útför í maí 1984 • Emil Jónsson, útför í desember 1986 • Geir Hallgrímsson, útför í september 1990 • Steingrímur Hermannsson, útför í febrúar 2010 • Benedikt Gröndal, útför í ágúst 2010 • Halldór Ásgrímsson, útför í maí 2015 • Davíð Oddsson, útför í mars 2026 Makar forseta • Georgína Björnsson, kona Sveins Björnssonar, útför í september 1958 • Dóra Þórhallsdóttir, kona Ásgeir Ásgeirssonar (lést meðan hann var í embætti), útför í september 1964 • Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, kona Ólafs Ragnars Grímssonar (lést meðan hann var í embætti), útför í október 1998 • Halldóra Eldjárn, kona Kristjáns Eldjárn, útför í desember 2008 Aðrar útfarir á vegum ríkisins* • Guðmundur Kamban rithöfundur, útför í júlí 1945 • Ásgrímur Jónsson listmálari, útför í apríl 1958 • Sr. Friðrik Friðriksson, stofnandi KFUM, útför í mars 1961 • Jón Stefánsson listmálari, útför í nóvember 1962 • Jóhannes Kjarval listmálari, útför í apríl 1972 • Dr. Sigurður Nordal, útför í september 1974 • Eiríkur Kristófersson, skipherra hjá Landhelgisgæslunni, útför í ágúst 1994 • Halldór Laxness, útför í febrúar 1998
Andlát Davíðs Oddssonar Rekstur hins opinbera Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira