„Sem betur fer er okkar maður ekki illa meiddur“ Samúel Karl Ólason skrifar 26. mars 2026 20:29 Kristján Helgi Þráinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu (vinstri), og Jón Þór Víglundsson, upplýsngafulltrúi Landsbjargar (hægri). Vísir/Sigurjón Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir björgunarsveitarmann sem keyrt var utan í á Reykjanesbraut í dag vera bólginn og lemstraðan en ekki illa meiddan. Þá segir aðstoðarlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að það að fólk hafi hlustað á tilmæli hafi skipt sköpum fyrir störf viðbragðsaðila í dag.
Rætt var við þá Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, og Kristján Helga Þráinsson, aðstoðaryfirlögregluþjón, í fréttum Sýnar í kvöld. Jón Þór segir að veðrið virðist hafa orðið hvað verst á Suðurnesjum. Mikið hafi verið um fasta bíla á nánast öllum Suðurnesjum. Útköllin hafi síðan teygt sig norður eftir landinu. „Allt í allt sýnist mér að það hafi verið svona þrjú hundruð manns á ferðinni frá okkur,“ segir Jón Þór. Á Reykjanesbrautinni í dag keyrði einn ökumaður gegnum lokunarpóst björgunarsveitarmanna og utan í einn þeirra. Jón Þór segir að fólki hafi verið brugðið við að heyra af því. „Okkur þykir þetta afar leitt, því það er enginn að gera sér að leik að hindra för eða stöðva för fólks. Þetta er gert af góðri ástæðu.“ Hann segir að á þessum tíma hafi verið mikið öngþveiti á Reykjanesbrautinni. Þar hafi til að mynda orðið fimm bíla árekstur og fleiri hafi verið í vandræðum. „Sem betur fer er okkar maður ekki illa meiddur en hann er bólginn og lemstraður eftir atvikið.“ Jón Þór segir málið nú á borði lögreglu. Áhugasamir geta farið yfir fréttir dagsins í vaktinni hér að neðan. Þakkir fyrir að hlusta Kristján Helgi Þráinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir daginn hafa verið þungan fyrir viðbragðsaðila og verkefnin hafi verið mörg. Þrátt fyrir það hafi dagurinn gengið ótrúlega vel. „Fyrir það viljum við viðbragðsaðilar sem vorum að vinna í dag þakka íbúum á höfuðborgarsvæðinu fyrir. Þau hlustuðu greinilega á tilmæli okkar í gær og héldu sér heimavið fram eftir degi í dag.“ Kristján segir það hafa skipt sköpum fyrir störf viðbragðsaðila í dag.
Veður Björgunarsveitir Óveður 26. mars 2026 Lögreglumál Tengdar fréttir Vaktin: Björgunarsveitir á fullu um land allt Appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi á Suðausturlandi, Vestfjörðum og Miðhálendinu. Fjölda vega hefur verið lokað og er varað við ferðalögum. 26. mars 2026 06:27 Sjónvarpsfréttir Sýnar vegna óveðursins Fréttastofa Sýnar efnir til aukafréttatíma í sjónvarpi klukkan tólf á hádegi vegna óveðurs um land allt. 26. mars 2026 09:40 Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent Sjá meira
Vaktin: Björgunarsveitir á fullu um land allt Appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi á Suðausturlandi, Vestfjörðum og Miðhálendinu. Fjölda vega hefur verið lokað og er varað við ferðalögum. 26. mars 2026 06:27
Sjónvarpsfréttir Sýnar vegna óveðursins Fréttastofa Sýnar efnir til aukafréttatíma í sjónvarpi klukkan tólf á hádegi vegna óveðurs um land allt. 26. mars 2026 09:40