Grænlendingar gætu verið í lykilstöðu Sunna Sæmundsdóttir skrifar 24. mars 2026 14:18 Inga Dóra Guðmundsdóttir er fyrrverandi formaður Siumut-flokksins í Nuuk. vísir/Egill Aðalsteinsson Danir ganga að kjörborðinu í þingkosningum í dag og mjótt er á munum milli rauðu og bláu blokkarinnar samkvæmt könnunum. Grænlendingar kjósa einnig tvo fulltrúa inn á danska þingið og fyrrverandi formaður jafnaðarmannaflokksins þar í landi segir stuðning þeirra geta reynst mikilvægan.
Metta Frederiksen forsætisráðherra boðaði óvænt til kosninganna fyrir um mánuði síðan og baráttan hefur því verið snörp. Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen, fyrrverandi formaður jafnaðarmannaflokksins Siumut á Grænlandi, segir baráttuna hafa að miklu leyti hafa snúist efnahagsmál og kjör fólks; verðhækkanir á matvöru og bensíni. Kjörstöðum verður lokað klukkan átta í kvöld að íslenskum tíma og æsispennandi kosninganótt er fram undan þar sem mjótt er á munum á milli bláu blokkarinnar svokölluðu og þeirrar rauðu samkvæmt skoðanakönnunum. Í Færeyjum verða einnig tveir kjörnir inn á danska þingið og tveir í Grænlandi. Inga Dóra segir stuðning þeirra geta reynst mikilvægan í flókinni stjórnarmyndun. Hvorugar þeirra sem nú eru þingmenn Grænlands gáfu kost á sér á og Inga segir fleiri en nokkru sinni fyrr í framboði þar í landi, eða alls tuttugu og sjö manns. Staðan sé algjörlega opin en úrslitin þar liggja fyrir í kringum miðnætti eða síðar. „Það getur verið þannig að þessir fulltrúar styðja til dæmis rauðu blokkina ef það verða tveir frá rauðu blokkinni í Grænlandi. Ef það verður einn þaðan og einn hinum megin verður staðan ennþá jöfn, þannig að þetta gæti orðið mikilvægt. Það getur verið að það þurfi einhvers konar samkomulag við við þessa kjörnu fulltrúa í málefnum sem að þeim finnst vera mikilvæg á þinginu,“ segir Inga Dóra. Metta Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, fékk þennan bol að gjöf á fundi með Grænlendingum í Kaupmannahöfn í dag.vísir/AP Samhliða aukinni spennu á Norðurslóðum sé ný kynslóð stjórnmálamanna að koma fram í Grænlandi. Hún telur að það muni koma enn skýrar fram í næstu grænlensku þingkosningum eftir um þrjú ár. Jafnréttismál hafi verið ofarlega á baugi í kosningabaráttunni í Grænlandi fyrir dönsku þingkosningarnar - og auðvitað samskipti ríkjanna tveggja til framtíðar. „Hvernig geta Grænland og Danmörk komist að samkomulagi sem gerir það að verkum að Grænlendingar fá betri stöðu í þessari ríkjasamvinnu? Það er svo margt sem er rætt um en ef það er eitthvað eitt mál að þá er það að tryggja betri stöðu Grænlendinga í þessum efnum,“ segir Inga Dóra.
Þingkosningar í Danmörku Danmörk Grænland Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Sjá meira