Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Kjartan Kjartansson skrifar 24. mars 2026 07:41 Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, þegar hún greiddi atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Róm í gær. Um 57 prósent kjósenda þar höfnuðu tillögum hennar að breytingum á dómskerfinu. AP/Valentina Stefanelli/La Presse Ítalskir kjósendur höfnuðu með afgerandi hætti breytingum á dómskerfi landsins sem ríkisstjórn Giorgiu Meloni forsætisráðherra vildi gera í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær. Úrslitin eru sögð veita stjórnarandstöðunni byr undir báða vængi.
Hægrimenn á Ítalíu hafa um árabil haldið því fram að réttarkerfið hallist til vinstri og að pólitík ráði för í því, sérstaklega eftir herör sem saksóknarar skáru upp gegn spillingu í stjórnmálum á 10. áratug síðustu aldar. Dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Meloni líkti saksóknurum landsins við „hliðstæðu mafíunnar“. Meloni hugðist breyta þessu og lagði til umbætur á umsjón og eftirliti með dómurum og saksóknurum. Stjórnarandstaðan gagnrýndi tillögurnar harðlega og sögðu þær tilraun ríkisstjórnarinnar til þess að veikja sjálfstæðis dómsvaldsins og auka völd sín. Þegar atkvæði voru greidd um tillögurnar í gær sögðu 54 prósent kjósenda nei. Kjörsókn var meiri en búist hafði verið við og slagaði upp í sextíu prósent. Evrópska blaðið Politico segir það til merkis um að þjóðaratkvæðagreiðslan hafi snúist upp í nokkurs konar vantrauststillögu á stjórn Meloni. Úrslitin eru sögð gefa stjórnarandstöðunni nýja von um að hún geti fellt Meloni í þingkosningum sem ættu að fara fram á næsta ári. Meloni hefur fram að þessu virst ósnertanleg en stjórn hennar hefur einkennst af stöðugleika sem lengi hefur verið hörgull á í ítölskum stjórnmálum. Meloni viðurkenndi að hún væri bitur yfir því að hafa misst af tækifæri til þess að breyta dómskerfinu. Hún ætlaði þó að halda ótrauð áfram. „Ítalir hafa tekið ákvörðun og við munum virða hana,“ sagði forsætisráðherrann eftir að úrslitin urðu ljós.
Ítalía Kosningar á Ítalíu Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira