Lærimeistari Charlie Kirk og faðir klappstýru nútímans látinn Jón Þór Stefánsson skrifar 22. mars 2026 10:03 Webb hafði mikil áhrif á Charlie Kirk Getty/Gage Skidmore Jeff Webb, maðurinn sem álitinn er faðir klappstýruliða nútímans, er látinn 76 ára að aldri. Hann mun hafa hlotið alvarlega höfuðáverka þegar hann féll við það að leika íþrótt sem kallast „pickleball“, sem er ekki ólík tennis.
Varsity Spirit, stærsta klappstýrusamband Bandaríkjanna sem Webb stofnaði sjálfur, greinir frá andlátinu. Webb stofnaði alþjóðlega klappstýrusambandið, sem í dag er undir regnhlíf áðurnefnds Varsity Spirit, á áttunda áratug síðustu aldar. Hann er sagður hafa átt lykilþátt í því að keppni klappstýruliða yrði sýnd í sjónvarpi í Bandaríkjunum, og síðar, árið 2021, að Alþjóðlega Ólympíusambandið skilgreindi keppnir þessar sem íþrótt. Webb var jafnframt viðloðinn pólitík, og átti fjölmiðla sem þóttu samsama sig hægri sinnuðum hugmyndum. Hann var til að mynda talinn eins konar lærimeistari Charlie Kirk, hægri sinnaðs áhrifavalds, sem skotinn var til bana í september síðastliðnum. Í kjölfar morðsins veitt Webb ýmsum fjölmiðlum viðtöl um Kirk og mögulega arfleið hans. Hann var viðstaddur í Hvíta húsinu þegar Kirk, þá látinn, var sæmdur frelsisorðu Bandaríkjanna. Turning Point USA, pólitísk samtök sem Kirk stofnaði, minntust Webb í yfirlýsingu. „Hugsjónamaður sem mótaði kynslóðir ungra leiðtoga, og trúði á kraft samfélagsins síns og lands. Hann var kær vinur Turning Point USA og Charlie. Hans verður sárt saknað.“
Andlát Bandaríkin Morðið á Charlie Kirk Tengdar fréttir Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Charlie Kirk, hægri sinnaður bandarískur áhrifavaldur og bandamaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, var skotinn til bana fyrir framan um þrjú þúsund manns á viðburði í háskóla í Utah. Ríkisstjóri Utan hefur lýst morðinu sem „pólitísku launmorði“. 10. september 2025 23:40 Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Fleiri fréttir Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Sjá meira
Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Charlie Kirk, hægri sinnaður bandarískur áhrifavaldur og bandamaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, var skotinn til bana fyrir framan um þrjú þúsund manns á viðburði í háskóla í Utah. Ríkisstjóri Utan hefur lýst morðinu sem „pólitísku launmorði“. 10. september 2025 23:40