Bankarnir byrjaðir að hækka vexti Eiður Þór Árnason skrifar 20. mars 2026 17:30 Líkur eru á því að Landsbankinn fylgi fast á eftir. Vísir Arion banki og Íslandsbanki hafa boðað vaxtabreytingar í kjölfar nýlegrar vaxtahækkunar Seðlabankans. Íbúðalánavextir hækka um allt 0,25 prósentustig og innlánsvextir um 0,35. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði meginvexti bankans um 0,25 prósentur á miðvikudag og standa þeir í 7,50%.
Sparisjóðurinn Indó hefur ákveðið að halda vöxtum sínum óbreyttum en hann lánar ekki fyrir húsnæði. Landsbankinn og Auður hafa ekki enn tilkynnt vaxtabreytingar. Hjá Arion banka munu óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 9,19%. Á sama tíma hækka óverðtryggðir íbúðalánavextir fastir til þriggja ára um 0,15 prósentustig og verða 8,25%. Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,10 prósentustig hjá Arion og verða 4,49%. Verðtryggðir íbúðalánavextir fastir til þriggja ára lækka einnig um 0,10 prósentustig og verða 4,64%. Hjá Íslandsbanka hækka breytilegir vextir á óverðtryggðum húsnæðislánum um 0,25 prósentustig. Breytilegir vextir fyrstu kaupalána hækka sömuleiðis um 0,25 prósentustig. Ekki eru boðaðar breytingar á vöxtum verðtryggðra lána. Greint er frá vaxtabreytingunum á vefsíðum bankanna. Önnur lán einnig dýrari Kjörvextir bílalána hjá Arion munu hækka um 0,25 prósentustig og verða 10,75%. Þá fara yfirdráttarvextir og veltuvextir kreditkorta einnig upp um 0,25 prósentur og verða 15,25%. Hjá Íslandsbanka hækka óverðtryggðir kjörvextir Ergo á bílalánum og bílasamningum um 0,25 prósentustig. Vextir á yfirdráttarlánum og greiðslukortum hækka sömuleiðis um 0,25 prósentustig. Innlánsvextir hækka Stýrivaxtahækkun Seðlabankans mun einnig hafa áhrif á sparnað einstaklinga og fyrirtækja. Vextir veltureikninga hjá Arion haldast óbreyttir en vextir annarra óverðtryggðra innlánsreikninga hækka um allt að 0,35 prósentustig. Vextir verðtryggðra reikninga munu hins vegar lækka um allt að 0,10 prósentustig. Hjá Íslandsbanka munu vextir á óverðtryggðum sparnaðarreikningum hækka um allt að 0,25 prósentustig. Vextir á veltureikningum fara upp um 0,15 prósentustig. Vaxtabreytingarnar hjá Arion banka taka gildi 26. mars en 23. mars hjá Íslandsbanka. Fréttin hefur verið uppfærð með vaxtaákvörðun Íslandsbanka.
Arion banki Fjármál heimilisins Verðlag Íslandsbanki Tengdar fréttir Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað Aðalhagfræðingur Arion banka segir helstu tíðindin af vaxtahækkunarákvörðun peningastefnunefndar í morgun, um 25 punkta hækkun, vera klofningur í nefndinni. Þrír nefndarmenn vildu hækka um 25 punkta en tveir vildu stíga skrefinu lengra og hækka um 50 punkta. Þá hafi seðlabankastjóri verið skýr með það að verði kjarasamningum slitið í sumar verði stýrivextir hækkaðir frekar. 18. mars 2026 11:20 Hækka stýrivexti Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,25 prósentum í 7,5. Vextir höfðu fyrir það staðið í stað í 7,25 prósentunum síðan í nóvember síðastliðnum. Síðan þá hefur verðbólga aukist í 5,2 prósent og óvissa í alþjóðamálum einnig aukist. Því höfðu flestir greiningaraðilar spáð hækkun vaxta. Tveir af fimm nefndarmönnum vildu hækka vexti enn meira. 18. mars 2026 08:30 Mest lesið eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Eldsneytissparnaður með Mobil Delvac Kynningar Fleiri fréttir Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Sjá meira
Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað Aðalhagfræðingur Arion banka segir helstu tíðindin af vaxtahækkunarákvörðun peningastefnunefndar í morgun, um 25 punkta hækkun, vera klofningur í nefndinni. Þrír nefndarmenn vildu hækka um 25 punkta en tveir vildu stíga skrefinu lengra og hækka um 50 punkta. Þá hafi seðlabankastjóri verið skýr með það að verði kjarasamningum slitið í sumar verði stýrivextir hækkaðir frekar. 18. mars 2026 11:20
Hækka stýrivexti Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,25 prósentum í 7,5. Vextir höfðu fyrir það staðið í stað í 7,25 prósentunum síðan í nóvember síðastliðnum. Síðan þá hefur verðbólga aukist í 5,2 prósent og óvissa í alþjóðamálum einnig aukist. Því höfðu flestir greiningaraðilar spáð hækkun vaxta. Tveir af fimm nefndarmönnum vildu hækka vexti enn meira. 18. mars 2026 08:30