Undirbúa mögulega kjaraviðræður: Stjörnvöld dragi lappirnar og Seðlabankinn hóti að beita sér enn frekar Birgir Olgeirsson skrifar 18. mars 2026 13:23 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir skuldara, leigjendur og barnafólk bera byrðarnar á meðan fjármagnseigendur varða með háum stýrivöxtum. VR segir allar líkur á að forsendur kjarasamninga séu brostnar og undirbúningur sé hafin fyrir mögulegar kjaraviðræður í haust. Vísir/Vilhelm Stéttarfélagið VR hefur hafið undirbúning fyrir mögulegar kjaraviðræður í haust. Halla Gunnarsdóttir formaður VR greinir frá þessu á Facebook en hún telur að allar líkur séu á að forsendur kjarasamninga bresti í haust.
Vinnumarkaðurinn samdi um langtímakjarasamninga árið 2024 og var markmiðið með þeim að koma böndum á verðbólguna með því að semja um lægri launahækkanir en áður. Samningarnir voru þó með forsenduákvæði sem inniheldur tvo endurskoðunarpunkta. Sá fyrri var í september í fyrra og mældist verðbólgan þá undir 4,95% viðmiðinu. Næsti endurskoðunarpunktur er í september á þessu ári. Ef verðbólgan mælist yfir 4,7% opnast heimild til að segja upp samningnum, að því gefnu að ekki náist að semja um viðbragð við forsendubresti. Eins og sakir standa er verðbólgan í 5,2% og verðbólguhorfur eru ekki bjartar næstu mánuði. Greiningardeildir bankanna spá því að verðbólgan verði há að minnsta kosti fram á sumarið. Stýrivexti verði hækkaðir ef laun hækka Peningastefnunefnd hækkaði stýrivexti um 0,25% í morgun, en ákvörðunin var rakin til mikillar hækkunar olíuverðs. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar sagði að ef verkalýðsfélögin fari fram á launahækkanir næsta haust muni það leiða til hækkunar stýrivaxta. Halla Gunnarsdóttir segir að óháð hækkunum á olíuverði muni forsendur kjarasamninga að öllum líkindum bresta. Hún kallar eftir samstilltu átaki. „En bæði stjórnvöld og stór fyrirtæki hafa ekki staðið við sitt og þá er traustið lítið,“ segir Halla. Vonirnar endanlega brostnar Hún segir núgildandi kjarasamninga hafa verið gerða eftir forskrift Seðlabankans, innan þess svigrúms sem hann áætlaði, og launafólk hafi fallist á lágar launahækkanir á tímum hárrar verðbólgu í von um að verðbólga myndi lækka og stýrivextir líka. Þær vonir séu hins vegar endanlega brostnar. „Fyrirtækin áttu að halda aftur af sér í verðhækkunum og hið opinbera átti að hemja gjaldskrárhækkanir og takast á við húsnæðismálin, sem eru stærsta viðfangsefnið. Hvorugt hefur gengið eftir, launafólk sat eitt eftir og hefur greitt þetta ástand dýru verði,“ segir Halla. Hækkun stýrivaxta muni ekki stöðva verðbólgu Skuldarar, leigjendur og barnafólk beri byrðarnar á meðan fjármagnseigendur séu varðir og hækkun stýrivaxta geri ekkert annað en að kreista viðkvæma hópa enn meira. „Hækkun stýrivaxta mun ekki: slá á einkaneyslu þeirra sem hagnast á háum vöxtum þvinga fyrirtæki til að láta af verðhækkunum stöðva gjaldskrárhækkanir hins opinbera byggja hús svo koma megi á stöðugleika í húsnæðismálum Lækka heimsmarkaðsverð á olíu. Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Verzlunarmannafélag ReykjavíkurVísir/Vilhelm Hækkun stýrivaxta mun því ekki stöðva þessa verðbólgu en það er hætta á að þeir geri illt verra. Þess vegna erum við í vítahring sem er erfitt að rjúfa,“ skrifar Halla. Vandinn sem verkalýðshreyfingin standi frammi fyrir sé að hún hafi ekkert annað en kjarasamninga til að halda í við verðbólgu og óðastýrivexti. Stjórnvöld virðist ekki ætla að beita ríkisfjármálunum til að taka á stöðunni og Seðlabankinn hóti að beita stýrivöxtum af enn meiri þunga með tilheyrandi kostnaði fyrir launafólk.
Seðlabankinn Kjaramál Tengdar fréttir „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ótti við forsendubrest kjarasamninga er að aukast meðal aðila innan Samtaka atvinnulífsins. Mjög margir mismunandi þættir spila inn í aukna verðbólgu hér á landi, sem nú mælist um 5,2 prósent, en nýleg áform virðast ekki líkleg til að sporna við henni. Þetta segir Bjarni Benediktsson, nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 9. mars 2026 20:36 Mest lesið Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Innlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita samþykki Innlent Grunur um brot gegn barni í algjörum forgangi hjá lögreglu Innlent „Nú hafi orðið bakslag“ Innlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Þyrlan kölluð út vegna slasaðrar konu Innlent Skrifuðu undir samkomulag um varnarsamstarf við ESB Innlent Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Erlent Fleiri fréttir Segir meinta vegtolla ekki á dagskrá Bein útsending: Ræðir glæpi gegn náttúrunni Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita samþykki „Nú hafi orðið bakslag“ Semja við Ísaksskóla um leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi Þyrlan kölluð út vegna slasaðrar konu Loka hæð vegna myglu á sjúkrahúsinu Skrifuðu undir samkomulag um varnarsamstarf við ESB Skipta Kjartani og Mörtu út fyrir nýliðana tvo Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Útilokar oddvitaframboð í borginni Undirbúa mögulegar kjaraviðræður: Stjórnvöld dragi lappirnar og Seðlabankinn hóti að beita sér enn frekar Setning Arndísar Báru framlengd um ár Grikkinn verður ákærður fyrir manndráp Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Úrgangur frá sjókvíaeldi samsvarar skólpi frá allt að tífaldri íbúatölu Noregs Tilraun til manndráps í Túnunum og óánægja með vaxtahækkun Asahláka og vatnavextir geti skapað hættu á vegum Alvarlegir annmarkar á brunavörnum á Stuðlum Einstefna komumegin við Keflavíkurflugvöll Grunur um brot gegn barni í algjörum forgangi hjá lögreglu Ekki hættur í Samfylkingu þótt hann bjóði fram fyrir Framsókn Þau skipa lista Sjálfstæðismanna í Múlaþingi Samþykktu að víkja liðhlaupum úr Sjálfstæðisflokknum úr nefndum og ráðum Lífshættuleg líkamsárás: Fimm úrskurðaðir í gæsluvarðahald Hættustigi aflýst og rýmingu aflétt á Ísafirði Afgreiðslu frestað um viku Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Sjá meira
„Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ótti við forsendubrest kjarasamninga er að aukast meðal aðila innan Samtaka atvinnulífsins. Mjög margir mismunandi þættir spila inn í aukna verðbólgu hér á landi, sem nú mælist um 5,2 prósent, en nýleg áform virðast ekki líkleg til að sporna við henni. Þetta segir Bjarni Benediktsson, nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 9. mars 2026 20:36
Undirbúa mögulegar kjaraviðræður: Stjórnvöld dragi lappirnar og Seðlabankinn hóti að beita sér enn frekar