Reykjavík á að virka – borg sem þjóni fólkinu Sigurður Sigurðsson skrifar 18. mars 2026 08:18 Það er eitthvað sem flestir Reykvíkingar finna fyrir á hverjum degi: við sitjum föst í umferðinni, finnum fyrir húsnæðisóöryggi og reynum að samræma fjölskyldulífið við kerfi sem virkar ekki nægilega vel. Þetta eru vandamál sem hefur fengið að vaxa því lausnirnar hafa of oft verið flóknar, hægar eða illa forgangsraðaðar. Það sem vantar í umræðuna er einfaldleiki. Ekki fleiri skýrslur eða fjarlæg loforð sem eiga að skila árangri eftir áratugi. Heldur lausnir strax sem bæta daglegt líf fólks núna og leggja grunninn núna að öruggara, einfaldara og ánægjulegra borgarlífi fyrir fjölskyldur. Í grunninn snýst þetta um eitt: Reykjavík þarf að virka – hún á að vinna fyrir fólk, ekki öfugt. Umferð – hraðara flæði og einfaldari leiðir Umferð er kannski skýrasta dæmið um kerfi sem hefur ekki fylgt vexti borgarinnar. Fólk eyðir sífellt meiri tíma í bílunum, í bið og pirring. Þetta er tími sem er tekinn frá fjölskyldu, vinum og eigin lífsgæðum. Hver tími sem tapast í umferð er tími sem fólk getur ekki notið með sínum nánustu. Þetta dregur mikið úr lífsgæðum. Lausnin er til: snjöll samhæfing umferðar í rauntíma, betri nýting akreina og rauntímaupplýsingar í síma fólks. Með þessum aðgerðum kemst fólk fyrr á milli staða og getur skipulagt daginn betur. Þetta snýst ekki um að afnema stórverkefni eins og Borgarlínu, heldur um að laga núna það sem er að fara úr skorðum í dag – lausn og úrbætur sem við finnum fyrir strax. Betra flæði í umferðinni þýðir meira frítíma, minni streitu og aukna vellíðan fyrir alla sem búa í borginni. Einfaldleiki og skilvirkni eru lykillinn til að gera daglegt líf fólks raunverulega betra. Húsnæði – öruggara og ódýrara Húsnæðisvandinn er ekki bara tölfræði – hann birtist á hverju heimili sem býr við óvissu, hátt leiguverð eða skort á fjármögnunarúrræðum. Þetta er eitt erfiðasta vandamálið sem þarf að leysa fljótt, þegar kemur að velferð fjölskyldna. Þegar fjölskyldur geta ekki búið í öruggu og viðráðanlegu húsnæði, án byggingagalla, verður daglegt líf þeirra flókið, streituvaldandi og mjög ótryggt. Lausnin er einföld en kröfuhörð: borgin taki virkari þátt í uppbyggingu með stórum uppbyggingasamningum við verktaka. Með því að byggja íbúðir og leigja á kostnaðarverði er hægt að auka framboð og lækka þrýsting á markaðinn. Með nútímalegum byggingaraðferðum, þar sem húshlutar eru framleiddir í verksmiðju og settir saman á byggingarstað, styttist byggingartími, kostnaður lækkar og gæði aukast. Fyrir íbúana þýðir þetta lægra verð, hraðari afhending og meiri fyrirsjáanleika. Enginn leki og engin mygla. Öruggara og hagkvæmara húsnæði skilar sér beint inn í lífsgæði fólks: fjölskyldur geta skipulagt daglegt líf, börn fá stöðugleika í skóla og foreldrarnir geta einbeitt sér að vinnu og fjölskyldu frekar en að hafa áhyggjur af húsnæði. Borgin þjóni fólkinu með því að tryggja að allir fái skynsamlegt úrræði til að fá aðgang að öruggum og viðráðanlegum húsnæðisúrræðum. Leikskólar og fjölskyldulíf – öruggari og sveigjanlegri Foreldrar eyða miklum tíma í að samræma líf sitt við kerfi sem er ekki sveigjanlegt. Biðlistar, óvissa og álag á starfsfólk gera daglegt líf fjölskyldna flóknara en það þarf að vera. Lausnin felst ekki í að fjölga börnum á hvern starfsmann, heldur í að bæta aðstæður þannig að starfsfólk geti sinnt börnunum betur, og foreldrar fái sveigjanlegri þjónustu sem einfaldar lífið. Með stærri og betur skipulögðum leikskólum er hægt að nýta rými og aðstöðu betur. Sameiginleg rými, skýrari verkferlar og betri aðstaða fyrir starfsfólk þýða að minni tími fer í skipulag og meira fer í börnin sjálf. Foreldrar fá sveigjanlegri opnunartíma og öruggari þjónustu sem minnkar streitu, eykur vellíðan og stuðlar að betra fjölskyldulífi. Þegar leikskólakerfið virkar vel, virkar allt annað daglegt líf fjölskyldunnar betur. Hrein og örugg borg Einnig þarf að horfa á umhverfið sem við búum í. Hreinleiki borgarinnar og loftgæði hafa bein áhrif á líðan okkar og barnanna okkar. Með betri hreinsunartækni og með markvissri nýtingu tækninnar er hægt að draga úr ryki, bæta loftgæði og skapa borg sem fólk vill njóta. Þetta eru ekki bara tæknileg smáatriði – þetta eru raunveruleg aukin lífsgæði sem hafa áhrif á daglegt líf okkar allra. Heildarmyndin – borg sem þjóni fólkinu Umferð, húsnæði og leikskólar eru ekki aðskilin mál. Þetta er sama sagan: hvernig við skipuleggjum borg sem virkar fyrir fólkið sem býr í henni. Betra flæði umferðarinnar, lægra verð húsnæðis og betri þjónusta við börnin skilar sér beint inn í daglegt líf. Það eru raunverulegar breytingar sem bæta mikið lífsgæði og auka vellíðan í Reykjavík. Í heildina eykur þetta velferð og efnahag fólksins þar sem meiri samvera og frítími verður hjá fjölskyldum og efnahagur batnar þar sem tekjur nýtast betur. Einfaldleiki, skilvirkni og áhersla á fólk eru lykillinn. Reykjavík þarf ekki fleiri skýrslur eða flókin loforð. Hún þarf að virka. Hún þarf að vinna fyrir fjölskyldur, barnafjölskyldur og eldri borgara. Hún þarf að vera borg sem auðveldar daglegt líf, bætir velferð og skapar meiri gleði í lífi þeirra sem búa hér. Þetta er ekki framtíðardraumur – þetta er raunhæft að gera núna, fullkomlega mögulegt og nauðsynlegt. Þegar borgin virkar fyrir fólk, þá aukast lífsgæði allra sem þar búa. Betra umferðarflæði, öruggara og ódýrara aðgengi að húsnæði og betri leikskólar – allt saman skilar sér í aukinni vellíðan og ánægju borgarbúa og fjármagn borgarinnar nýtist margfalt betur þar sem félagsleg vandræði minnka. Reykjavík getur verið borg sem virkar betur, verið einfaldari, skilvirkari og ánægjulegri fyrir alla sem búa í henni. Reykjavík á að virka fyrir fólk. Ekki öfugt. Höfundur er byggingaverkfræðingur og áhugamaður um bætt samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Skoðun Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar