Körfubolti

Dani: Við erum að taka næstu skref

Árni Jóhannsson skrifar
Danielle Rodriguez á flugi að setja síðustu körfu leiksins.
Danielle Rodriguez á flugi að setja síðustu körfu leiksins. Vísir / Diego

Danielle Rodriguez var fremst í flokki íslenskra leikmanna í kvöld sóknarlega. Hún skilaði 20 stigum og sex stoðsendingum í flottum sigri Íslands á Portúgal 62-60. Hún var mjög ánægð með margt hjá liðinu í kvöld.

Hvað var Ísland að gera rétt fannst Dani í kvöld?

„Við gáfum bara fyrsta höggið í kvöld og náðum svo að halda áfram. Á móti Serbíu náðum við bara tveimur leikhlutum en náðum ekki að klára leikinn. Í kvöld náðum við að klára leikinn en í kvöld náðum við að klára 40 mínútur.“

Íslenska liðið hefur oft átt erfitt með að spila vel í 40 mínútur hingað til. Hvað var öðruvísi í kvöld?

„Við vorum bara með betra hugarfar. Við ákváðum bara að klára allan leikinn. Við vildum ekki bara vera ánægðar með fyrsta og annan leikhlutann en við vildum klára þriðja og fjórða líka og náðum því.“

Allt liðið spilaði frábærlega varnarlega þannig að meiri byrgðar voru lagðar á Dani sóknarlega. Hvernig leið henni í lok leik og á meðan leik stóð?

„Ég er dauðþreytt. Ég er samt svo ánægð með liðið ða koma saman og klára þennan leik.“

Hvað ber framtíðin í skauti sér fyrir þetta íslenska lið? Þetta var ákveðin yfirlýsing er það ekki?

„Við erum að taka næstu skref. Við vildum bæta okkur frá síðasta glugga og við gerðum það. Nú er bara að taka næstu skref í næsta glugga. Við þurfum að taka lítil skref í rétta átt í framtíðinni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×