Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Agnar Már Másson skrifar 14. mars 2026 21:40 Mynd úr safni frá ísafirði. Vísir/Einar Nokkur atvinnuhúsnæði á Ísafirði verða rýmd í fyrramálið vegna snjóflóðahættu, að sögn Veðurstofu Íslands. Sömuleiðis verður Flateyrarvegi og Súðavíkurhlíð lokað á miðnætti, en í nótt taka gular veðurviðvaranir gildi á norðvesturhorni landsins.
Hætta er á snjóflóðum á Norðurlandi og Vestfjörðum í nótt þar sem um og upp úr miðnætti í kvöld og á morgun, sunnudag, og á mánudag er spáð norðaustan hvassviðri og ofankomu á norðan- og norðvestanverðu landinu. Snjóflóðahætta verður á vegum á Vestfjörðum og hefur Vegagerðin lýst yfir hættustigi á Súðavíkurhlíð og Flateyrarvegi frá miðnætti og verður vegunum þá lokað. Vegagerðin bendir einnig á að miklar líkur séu á því að vegir á Vestfjörðum verði ófærir eða þeim lokað. Vegfarendur eru því beðnir að kynna sér aðstæður og veðurspá áður en lagt er af stað. Gular veðurviðvaranir taka gildi á norðvesturhorninu klukkan 5 í nótt og gilda til klukkan 20 á morgun, 15. mars. Varað er við norðaustanátt, hátt í 23 m/s og snjókomu eða skafrenningi með lélegu skyggni og versnandi færð. Gul veðurviðvörun gildir frá kl. 05 til 20 á morgun, 15. mars. Varað er við norðaustanátt hátt í 23 m/s og skafrenningur eða snjókoma með köflum, úrkomumest norðantil. Slæmt skyggni og líkur á versnandi færð.Veðurstofa Íslands Veðurstofan lýsti í kvöld yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum frá miðnætti í kvöld. Ákveðið hefur verið að rýma að nokkur atvinnuhúsnæði á Ísafirði verði rýmd í fyrramálið. Nokkur snjóflóð hafa fallið á svæðinu undanfarna daga, meðal annars á vegi en ekkert mjög stórt. Óvissustig var á norðanverðum Tröllaskaga í dag en flennistórt snjóflóð féll við Siglufjörð í nótt. Íbúum á Steinaflötum við Siglufjörð var gert að yfirgefa heimili sín vegna snjóflóðahættu í dag. Ofanflóðasérfræðingur á Siglufirði sagðist vði Vísi aldrei hafa séð annað eins stórt snjóflóð og það sem féll þar í nótt.
Veður Snjóflóð á Íslandi Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Sjá meira