Körfubolti

Skrýtin ára yfir Val: „Svo kemur þetta og þá ferðu svo­lítið að efast“

Aron Guðmundsson skrifar
Frá leik Vals fyrr á tímabilinu gegn KR
Frá leik Vals fyrr á tímabilinu gegn KR Vísir/Pawel

Sérfræðingar Körfuboltakvölds ræddu dapra frammistöðu Vals gegn Njarðvík í Bónus deild karla. Frammistöðu sem fær fólk til þess að efast um getu liðsins og hvort það hafi burði til þess að sækja í átt að Íslandsmeistaratitli. 

Karlalið Vals í körfubolta, lið sem hefur notið mikillar velgengni undanfarin ár hefur oft á tíðum virkað brothætt á yfirstandandi tímabili þrátt fyrir að vera mannað landsliðsmönnum og miklum reynsluboltum í deildinni. 

Þrjátíu og tveggja stiga tap liðsins og döpur frammistaða var til umræðu í Körfuboltakvöldi.

Klippa: Skrýtin ára yfir Val

„Það er það sem mér finnst það skrítnasta við þetta. Þó svo að við hefðum dottið niður þá sáum við alltaf einhvern einn leikmann eða tvo sem voru góðir í þeim leikjum en liðið var kannski lélegt,“ sagði Magnús Þór Gunnarsson, sérfræðingur Körfuboltakvölds og fyrrverandi leikmaður meistaraliðs Keflavíkur þar sem að hann vann fimm Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla.

„Þarna er bara eins og það sé leiðinlegt að spila,“ sagði Magnús um spilamennsku Vals gegn Njarðvík. „Eins og þeir séu bara komnir með nóg af þessu.“

Hermann Hauksson talaði á svipuðum nótum og Magnús Þór. Valsliðið væri með leikmenn sem eru fremstir í flokki þegar kemur að leikgreind, með leikmenn sem eiga inni einhvern gír þegar líður nær úrslitakeppninni.

„Svo kemur þetta og þá ferðu svolítið að efast,“ sagði Hermann um frammistöðu Vals. „Eru þeir miklu meira brothættir heldur en maður hélt þeir væru? Því þegar að maður horfir á liðið hugsar maður með sér að þarna er sé rosalega flottur hópur af leikmönnum.“

Umræðuna um Valsliðið í Körfuboltakvöldi í heild sinni má sjá hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×