Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Agnar Már Másson skrifar 13. mars 2026 18:21 Kjartan tók við verðlaununum í kvöld. skjáskot Kjartan Kjartansson, blaðamaður Vísis, hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2025 fyrir umfjöllun sína um loftslagsmál.
Þetta var tilkynnt á verðlaunaafhendingu á Listasafni Reykjavíkur upp úr klukkan 18 í kvöld. Kjartan var tilnefndur fyrir fréttaskýringar um loftslagsmál á Vísi og fyrir að skýra flókin umfjöllunarefni á mannamáli án þess að afsláttur sé gefinn af fagmennsku. Tilnefninganefnd sagði að Kjartan hefði sýnt elju við öflun gagna og fylgt málum vel eftir. Hann afhjúpaði misskilning stjórnvalda á losunarmarkmiði Íslands í samstarfi við Evrópusambandið sem varð til þess að íslensk stjórnvöld þurftu að endurskoða markmið sín vegna Parísarsamningsins. Í þakkarræðu sinni í kvöld nefndi Kjartan hve erfitt væri fyrir íslenska blaðamenn að sérhæfa sig í einhverju. Því þætti honum ánægjulegt að umfjöllun sem þætti „kannski ekki mjög sexí“, eins og fréttir um loftslagsmál og losunarheimildir, væri veitt eftirtekt. Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson á Rúv unnu verðlaun fyrir umfjöllun ársins 2025, nánar tiltekið fyrir umfjöllun í Kveik um afleiðingar alvarlegrar e.coli matarsýkingar. Verðlaun fyrir viðtal ársins 2025 hlaut Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir á Heimildinni fyrir viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, yfir nokkurra daga skeið þar sem forsetinn greindi frá sársaukafullri reynslu í barnæsku og kynferðisofbeldi. Sigurvegarar í flokki rannsóknarblaðamennsku ársins 2025 voru svo Helgi Seljan og Árni Þór Theódórsson hjá Rúv fyrir umfjöllun í Kveik um umfangsmiklar njósnaaðgerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar, eða PPP-málið eins og það er kallað. Fréttin hefur verið uppfærð.
Fjölmiðlar Sýn Loftslagsmál Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Pútín sló öll met Erlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Innlent Fleiri fréttir Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Sjá meira