Fann ekkert atvinnumannalið í Hveragerði: „Þeir hefðu getað tapað svona 30-0“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. mars 2026 07:01 David Panka hélt að hann væri að fara á reynslu hjá alvöru atvinnumannaliði, en varð fyrir miklum vonbrigðum hjá Ægi. Fótboltamaðurinn David Jonathan Panka átti alls ekki góða reynslu hér á landi og sagði frá misheppnaðri tilraun sinni til að semja við lið Ægis í Lengjudeildinni.
Panka er 26 ára Hollendingur sem átti ágætis feril fyrstu árin í fótboltanum en horfir nú á tækifærin fjara út. Hann kom hingað til lands í leit að samningi og var á reynslu hjá liði Ægis, en entist aðeins í tvo daga. Fyrir það fyrsta virðist hann hafa misskilið eitthvað og haldið að Ægir sé alvöru atvinnumannalið, sem það er alls ekki. Smæð klúbbsins kom honum á óvart og svo fékk Panka líka mikið sjokk þegar hann kom fyrst til Hveragerðis. „Mig langaði alltaf til að heimsækja Ísland að minnsta kosti einu sinni… Ég vanmat loftslagið hér alveg svakalega. Svona líta flestir dagar út hérna, það er skítkalt,“ sagði Panka og sýndi snjóþungann í Hveragerði þann daginn. Hitti ekki þjálfarinn og fékk áfall við að horfa á leik Reynslunni hjá liði Ægis lýsir hann sem „kaótískri.“ Þjálfarinn var veikur og gat ekki hitt hann fyrstu dagana þannig að Panka æfði einn í lyftingasalnum. Svo kom það Panka verulega á óvart hversu lélegt liðið væri þegar hann sá Ægi tapa 3-1 gegn Keflavík. „Ég gat ekki séð hvernig þetta lið á að geta verið samkeppnishæft. Þeir töpuðu 3-1 en hefðu getað tapað svona 30-0.“ Þegar þjálfarinn var búinn að jafna sig af veikindum og Panka fór loksins að æfa með liðinu sannfærðist hann ekkert frekar og benti aftur á hversu slakt Ægis liðið væri. „Þó leikmennirnir væru mjög almennilegir var þetta alls ekki eitthvað fyrir mig. Þetta var allt of mikil áhugamennska. Eins og að mæta fimm mínútum fyrir æfingu? Það er eitthvað sem þú gerir sem krakki.“ „Ég vildi alls ekki spila þarna“ Á endanum hafði Ægir ekki áhuga á því að semja við Panka og tilfinningin var svo sannarlega gagnkvæm. „Eftir að hafa tekið tvær æfingar þá átti ég spjall við þjálfarann og hann sagðist ekki vilja fá mig því ég hefði ekki sýnt að ég virkilega vildi ná árangri. Hann sagði að ég hefði alls ekki tekið reynslunni alvarlega, ekki lagt nógu mikið á mig. Ég meinti það ekki þannig, en það var hægt að sjá á mér að ég vildi alls ekki spila þarna,“ sagði Panka. Instagram færslu hans, þar sem hann lýsir sínum hrakförum, má sjá hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by David Jonathan Panka (@davidjpanka_)
Lengjudeild karla Ægir Mest lesið Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ Íslenski boltinn Fann ekkert atvinnumannalið í Þorlákshöfn: „Þeir hefðu getað tapað svona 30-0“ Fótbolti „Sé ekki að almannahagsmunir séu ríkari hér en í Danmörku eða Svíþjóð“ Sport Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Íslenski boltinn David James þjálfar markverði Vals Íslenski boltinn Breytti aðeins til og bætti heimsmetið í fimmtánda sinn Sport Ótrúleg sigurganga Klæbo endaði með árekstri og spítalaferð Sport „Allir hjá Manchester United elska hann“ Enski boltinn Glæsimark og ískaldur Albert tryggðu sigur Fótbolti Hættir í NFL til að fara að bjarga mannslífum Sport Fleiri fréttir Fær lengra leikbann og er til rannsóknar fyrir að hrinda boltastráki Sjáðu sniðugustu hornspyrnur tímabilsins Moyes varði Arteta: Efast frekar um þá sem gagnrýna Arsenal David James þjálfar markverði Vals „Allir hjá Manchester United elska hann“ Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Munaði litlu að uppalinn Bodö-maður missti af Evrópuævintýrinu Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Einkaviðtal við Cody Gakpo: „Það eru miklar væntingar frá öllum“ Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Kvaddi Chelsea með tárin í augunum Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ Fann ekkert atvinnumannalið í Þorlákshöfn: „Þeir hefðu getað tapað svona 30-0“ Glæsimark og ískaldur Albert tryggðu sigur Elías hélt hreinu í Skírisskógi Aron Einar stóð í stríði í svekkjandi tapi Logi og Gísli í slæmri stöðu Leikurinn snerist hjá Sverri en Hákon hafði heppnina ekki með sér Bikardraumurinn lifir góðu lífi hjá Íslendingaliðinu Inter Annar tónn í Trump sem ráðleggur Íran að halda sig fjarri HM Potter framlengdi við Svíþjóð áður en HM-örlög landsliðsins ráðast Blint val á bestu tilþrifum: Unaðslegar snertingar og samloka í stúkunni Neymar svaraði gagnrýnendum sínum: „Mjög erfitt að vera ég“ Hver er þessi Valverde sem allir eru að missa sig yfir? Hörmuleg vika fyrir ensku liðin í Meistaradeildinni Þakklátur eftir drauminn sem breyttist í martröð „Það er kannski einn sem má svindla“ Missti af Barcelona-leiknum af því að hann mætti ekki á réttan St James Park „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Sjáðu þrennu þess vanmetna, Bodö-gleði, horn í síðu Arsenal og markaveislu í París Sjá meira