Leikurinn snerist hjá Sverri en Hákon hafði heppnina ekki með sér Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. mars 2026 19:45 Sverrir Ingi Ingason fagnar með Panathinaikos. Getty/Alex Pantling Panathinaikos er með 1-0 forystu eftir fyrri leikinn gegn Real Betis í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Lille er hins vegar 0-1 undir eftir fyrri leikinn gegn Aston Villa.
Staðan stóð jöfn eftir spennandi og opinn fyrri hálfleik hjá Panathinaikos gegn Real Betis. Í upphafi seinni hálfleiks urðu heimamenn Panathinaikos hins vegar manni færri því Anass Zaroury fékk tvö gul spjöld með skömmu millibili og þar með rautt. Þá breyttist leikurinn mikið. Panathinaikos féll aftar á völlinn og varðist en gestirnir sóttu stíft. Panathinaikos tókst loks að brjótast upp í almennilega skyndisókn eftir rúmlega áttatíu mínútur og upp úr henni fiskuðu þeir vítaspyrnu. Diego Llorente var dæmdur brotlegur, fékk sitt seinna gula spjald og var rekinn af velli. Vicente Taborda skoraði síðan úr vítaspyrnunni fyrir Panathinaikos og tryggði liðinu 1-0 sigur. Seinni leikur fer fram á heimavelli Real Betis í næstu viku. Watkins með sigurmarkið fyrir Aston Villa gegn Lille Fyrri hálfleikurinn var einnig fjörugur en markalaus hjá Lille og Aston Villa. Hákon Arnar var í byrjunarliði Lille.Vísir/Getty Heimamenn í Frakklandi, með Hákon Arnar Haraldsson í byrjunarliðinu, voru hættulegri í upphafi leiks en Aston Villa vann sig síðan vel inn í leikinn. Villa-menn komu síðan af krafti út í seinni hálfleik og uppskáru mark á 61. mínútu. Ollie Watkins skoraði markið, með smá heppni. Boltinn skoppaði í einhverjum skallatennis inn fyrir vörn Lille og Watkins skallaði hann síðan yfir markmanninn sem kom æðandi út. Sprellimark en það dugði til sigurs og Aston Villa er með forystuna fyrir seinni leikinn á Villa Park. Jafnt í ítalska einvíginu en Porto sótti sigur til Stuttgart Staðan er 1-1 í einvígi Bologna og Roma eftir fyrri leikinn. Federico Bernardeschi kom heimamönnum yfir en Lorenzo Pellegrini jafnaði fyrir Rómverja. Seinni leikurinn fer fram í Róm. Porto er í góðri stöðu eftir 1-2 sigur á útivelli gegn Stuttgart. Rodrigo Mora og Terem Moffi komu Porto tveimur mörkum yfir en Deniz Undav bætti úr stöðunni fyrir heimamenn Stuttgart.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Frakkar vilja Infantino burt Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Handbolti Fleiri fréttir Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Sjá meira