Umræðan

Að gefa rétt spil á hendi

Íris Björk Hreinsdóttir skrifar

Það er umhugsunarvert hvernig oft er talað um fjármál, að þau séu flókið og jafnvel dálítið ógnvekjandi fyrirbæri. Sem þau geta vissulega verið. Tölur, sparnaður, vextir, markaðir og fjárfestingar, virðast mörgum eingöngu tilheyra sérfræðingum í fjármálum, en ekki öðrum. Fjármál eiga samt alls ekki að vera framandi, enda eru þau hluti af daglegu lífi okkar allra.

Ungt fólk kallar eftir auknu fjármálalæsi

Unga fólkið okkar vill upp til hópa læra meira um fjármál, en könnun sem Gallup gerði fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) sýnir að 90% aðspurðra hefðu viljað læra meira um fjármál í skóla. Draga má þá ályktun af sömu könnun að mikilvægt er að vera læs á fjármál snemma á ævinni, en könnunin sýndi tengsl á milli fjármálalæsis og fjárhagstöðu. Einstaklingar með lítið fjármálalæsi eru líklegri til þess að safna skuldum, en fólk sem skoraði hærra í fjármálalæsi er líklegra til þess að geta safnað sparifé eða leggja fyrir reglulegan sparnað í formi hlutabréfa eða sjóða.

Kennum fjármál í skólum, á undan TikTok

Fjármálalæsi skiptir máli frá ungum aldri. Freistingarnar eru alls staðar. Jafnvel þegar fólk er að vafra um í símanum og sér spennandi auglýsingar veðmálasíðna eða ákveður að eyða sumarhýrunni á einni kvöldstund í netverslunum. Það að vera meðvitaður um fjármál og læs á aðstæður skiptir einnig máli í baráttunni gegn netsvikum. Að mati SFF hefur skortur á yfirsýn og eftirfylgni með stöðu fjármálalæsis hindrað hraðari innleiðingu þess á meðal almennings hérlendis.

Nærum forvitnina

Fjármálalæsi snýst í grunninn um að skilja hvernig peningar virka. Hvernig þeir safnast upp, hvernig þeir geta unnið fyrir okkur og hvernig ákvarðanir sem við tökum í dag geta haft áhrif á framtíðina. Fjármálalæsi snýst einnig um hegðun og viðhorf og því er því gott að byrja að tileinka sér góða hætti sem fyrst, en það er samt aldrei of seint. Það þarf ekki að byrja á flóknum hugtökum eða stórum fjárfestingum. Oft er gott að byrja á að kveikja forvitni ungmenna og kenna þeim að temja sér að setja sig inn í hlutina. Að hafa grunn í fjármálalæsi gefur okkur frelsi til þess að taka upplýstar ákvarðanir og hafa meiri stjórn á eigin framtíð. Bestu leiðirnar til að læra eru oft að heimfæra viðfangsefnið á daglegt líf. Að prófa sig áfram, spyrja spurninga og ræða hlutina opinskátt. Að sjá sparnað vaxa smám saman og skilja hvernig sparnaður vex með tímanum getur verið bæði fræðandi og skemmtilegt. Lærdómur sem getur einfaldlega hafist við eldhúsborðið heima eða í ísbíltúrnum á sunnudögum.

Vilji án verks er lítils virði

OECD hefur ráðlagt aðildarríkjum sínum að veita öll börnum tækifæri til að læra um fjármál í skóla. Því var ánægjulegt að sjá áherslu á fjármálalæsi í drögum að stefnu stjórnvalda í neytendamálum og hvöttu SFF í umsögn sinni um stefnuna til þess að gengið yrði lengra í þeim efnum. Í umsögninni hvetja SFF til þess að tryggt verði að fjármálalæsi verði kennt í öllum grunnskólum landsins, með samræmdum og heildstæðum hætti og að stjórnvöld komi á fót landsstefnu í fjármálalæsi. Tóku samtökin í sama streng í umsögn um drög að atvinnustefnu Íslands til 2035. Mikilvægi fjármálalæsis kom einnig ítrekað fram á ráðstefnu sem SFF hélt ásamt Nasdaq um eflingu hlutabréfamarkaðarins og ráðstefnu um fjárfestingareikninga. Áhuginn og viljinn er því til staðar hjá stjórnvöldum til þess að gera betur. Án verka er viljinn þó eingöngu hugmynd.

Það er leikur að læra …

SFF, hafa með stuðningi Landsambands lífeyrissjóða, rekið vettvanginn Fjármálavit til þess að leggja sitt af mörkum til að stuðla að auknu fjármálalæsi. Fjármálavit stendur þessa dagana fyrir Fjármálaleikunum, sem er landskeppni í fjármálalæsi milli nemenda á unglingastigi grunnskóla. Þar geta þátttakendur prófað þekkingu sína og lært um fjármál á skemmtilegan, einfaldan og aðgengilegan hátt. Nálgunin er sú að fræðsla um fjármál þarf ekki alltaf að vera þung eða flókin og að stundum er besta leiðin til að læra einfaldlega að taka þátt og hafa gaman. Það er betra að misstíga sig í leik og læra af því, heldur en þegar út í lífið er komið Markmiðið er að læra „umferðareglurnar“ og nýta þær sér í hag í daglegu lífi. Því fyrr sem við tileinkum okkur gott fjármálavit, því betur stöndum við! …að vita meira og meira, meira í dag en í gær.

Fjármálaleikarnir standa yfir til og með 20. mars og má finna allar upplýsingar á slóðinni fjarmalavit.is Kennarar og foreldrar eldri bekkja grunnskóla eru sérstaklega hvattir til þess að kynna sér leikana.

Höfundur er yfirlögfræðingur Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu




Umræðan

Sjá meira


×