Handbolti

Á góðri leið með því að tvö­falda fram­lagið sitt frá því í fyrra

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenski handboltamaðurinn Einar Bragi Aðalsteinsson er að standa sig vel í sænska handboltanum hjá toppliði deildarinnar.
Íslenski handboltamaðurinn Einar Bragi Aðalsteinsson er að standa sig vel í sænska handboltanum hjá toppliði deildarinnar. @ifk1899

Íslenski handboltamaðurinn Einar Bragi Aðalsteinsson átti flottan leik með Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni um helgina og er heldur betur að skapa sér nafn í Svíþjóð á þessu tímabili.

Einar Bragi skoraði sjö mörk Kristianstad úr aðeins ellefu skotum í eins marks útsigri á Hammarby, 31-30.

Það þýðir að Einar er kominn með samtals 82 mörk og 40 stoðsendingar í fyrstu tuttugu leikjum tímabilsins.

Einar er því á góðri leið með því að tvöfalda framlagið sitt frá því í fyrra þegar hann var með samtals 46 mörk og 33 stoðsendingar í 24 leikjum á sínu fyrsta tímabili með sænska félaginu.

Hann hefur þegar skorað 36 mörkum meira í vetur þrátt fyrir að eiga enn eftir tvo leiki.

Kristianstad er á toppnum í deildinni eftir sigurinn á Hammarby sem situr í þriðja sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×