Viggó kom að tuttugu mörkum í fyrsta sigrinum á árinu 2026 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. mars 2026 17:18 Viggó Kristjánsson var stórkostlegur í sigri Erlangen í þýska handboltanum í dag. VÍSIR/VILHELM Viggó Kristjánsson var í aðalhlutverki þegar Erlangen vann langþráðan sigur í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag. Annað Íslendingalið, Melsungen, fagnaði líka góðum sigri.
Ómar Ingi Magnússon, kollegi hans í íslenska landsliðinu, skoraði tólf mörk í deildinni fyrr í dag en Viggó gerði enn betur og skilaði sextán mörkum og fjórum stoðsendingum í góðum sigri. Kom því að tuttugu mörkum Erlangen sem er mögnuð frammistaða í bestu deild í heimi. Erlangen vann fimm marka heimasigur á Minden, 36-21, eftir að hafa unnið seinni hálfleikinn 20-16 Erlangen vann síðasta deildarleik 13. desember síðastliðinn á móti Leipzig en síðan þá hafði liðið aðeins náð í tvö stig úr sex leikjum (tvö jafntefli og fjögur töp). Viggó var magnaður í fyrri hálfleiknum þar sem hann skoraði tíu mörk úr ellefu skotum og átti eina stoðsendingu að auki. Hann kom með beinum hætti að ellefu af sextán mörkum og Erlangen var aðeins einu marki yfir í hálfleik, 16-15. Hálfleiksræðan hjá Minden hefur aðallega farið í það að stöðva Viggó og það gekk mun betur eftir hlé. Svona til að byrja með en svo fór Viggó á mikið flug undir lokin. Hann bætti á endanum við sex mörkum og þremur stoðsendingum í seinni hálfleiknum. Andri Már Rúnarsson komst ekki á blað hjá Erlangen í leiknum. Arnar Freyr Arnarsson skoraði þrjú mörk úr þremur skotum fyrir Melsungen í sex marka útisigri á Wetzlar, 38-32, og Reynir Þór Stefánsson bætti við einu marki en hann spilaði bara lokamínútur leiksins.
Þýski handboltinn Mest lesið Hver verður fljótastur að hlaupa míluna? Sport Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Lygileg níu marka veisla í París Fótbolti Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Handbolti Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Enski boltinn Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Handbolti Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Körfubolti Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Íslenski boltinn Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Fótbolti Fleiri fréttir Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Stjörnukonur jöfnuðu metin Sjá meira