Látum oss ganga í ESB Hannes Örn Blandon skrifar 7. mars 2026 07:01 Ég hlustaði á athygliverðar umræður í símatíma á Bylgjunni, fimmtudaginn 4. mars, þar sem menn tókust á um byggingu Landspítalans nýja. Þar sér ekki fyrir endann á þeim byggingum og að er virðist væntanleg verklokum. Kostnaður fer með himinskautum og eykst með degi hverjum. Framkvæmdastjóra verkefnisins vafðist um sumt tunga um höfuð. Í umræðunni kom fram að Skotar í Glasgow reistu heilmikinn spítala á fjórum árum. Ef mér skjöplast ekki þá byrjuðum við að byggja okkar 1997. Annar merkilegur punktur sem kom fram í umræðunni er sú dæmalausa íslenska meinsemd að þegar verktaki býður t.d. 80 milljónir í verk tvöfaldast ef ekki margfaldast sú upphæð á nó tæm. Því var varpað fram að þetta gerist í 80% tilvika. Þetta eru mikil tíðindi og ill ef satt er. Sjálftökumenn virðast sumsé á hverju strái. Guð ekki bara blessi Ísland heldur hjálpi. Ég styð inngöngu í ESB. Þar á bæ sýnast menn kunna betur að meðhöndla vexti og verðtryggingar. Þeir brúka og traustan gjaldmiðil sem nýtist alþýðu manna en ekki bara íslenskum milljónerum. Bretar eru að átta sig á því að með úrsögn hafa þeir tapað milljónum punda ef ekki milljörðum. En populistinn og einangrunarsinninn Farage glennir sig og glottir. Og nóg eigum við af slíkum sem óttast að missa spóna úr öskum og halda fram glötun sjálfstæðis og frelsis til athafna. En látum oss hafa í huga að þorri þjóðarinnar situr í skuldafangelsi. Frelsi einstaklings hvað?? Fyrir nokkrum árum heimsóttum við hjónin Suðureyjar við Skotland (Herðubreiðareyjar). Það var áhugaverð heimsókn. En þungt var hljóð í heimamönnum. Landbúnaður var í upplausn og við blasti að takmarka ætti fiskveiðar. Grannar þeirra í Orkneyjum eru líka með böggum hildar af svipuðum ástæðum. Þeir hafa og látið í ljós að hverfa á ný í faðm Noregskonungs. Þetta ástand hefur víst skapast þegar Bretar sögðu sig úr ESB en það fyrirtæki hefur fyrir sið að styrkja og styðja útkjálkasamfélög sem og fyrirbæri í útrýmingarhættu. Það ætti því höfða til flestra Íslendinga sem ýmsir þjást af því heilkenni sem kalla mætti megalómenísk minnimáttarkennd. Áfram frú Kristrún, frú Þorgerður Katrín, já og frú Inga! Undirritaður styður umsókn í ESB. Höfundur er fyrrverandi prófastur og núverandi gamalmenni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Evrópusambandið Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar