Einmanaleiki er spegilmynd samfélagsgerðar okkar Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar 5. mars 2026 08:00 Við tölum um einmanaleika – en skiljum við hann? Í vikunni samþykkti borgarstjórn Reykjavíkur að fara í markvissar aðgerðir til að sporna gegn einmanaleika, sem er jákvætt og mikilvægt skref. Einmanaleiki hefur um tíma verið álitinn lýðheilsuvandi og umræðan undanfarin ár verið áberandi – sérstaklega þegar kemur að eldra fólki. En spurningin sem við þurfum að staldra við er þessi: Hvað eigum við í raun við þegar við segjum „einmanaleiki“? Fyrir áramót vann ég ásamt samnemendum mínum í öldrunarþjónustu við Háskóla Íslands (Ágúst Óskarsson, Eygló Héðinsdóttir og Judith Lucia Bischof) að fræðilegri greiningu á einmanaleika eldra fólks. Þar kom skýrt fram að einmanaleiki er ekki eitt fyrirbæri heldur þarf að skilja hann út frá þremur víddum: félagslegri, tilfinningalegri og tilvistarlegri vídd. Félagslegur einmanaleiki snýr að skorti á þátttöku og tengslaneti – þegar við upplifum okkur utan samfélagsins og/eða höfum takmörkuð tækifæri til samskipta. Tilfinningalegur einmanaleiki er dýpri – hann tengist skorti á nánum, traustum tengslum og upplifuninni af því að enginn skilji okkur í raun og veru. Tilvistarlegur einmanaleiki snýr að merkingu og tilgangi – þeirri upplifun að við séum ein í eigin tilvist, jafnvel þótt við séum umkringd öðru fólki. Rannsóknir sýna að langvarandi einmanaleiki hefur bæði andleg og líkamleg áhrif, meðal annars hærri streitusvörun, auknar líkur á þunglyndi og verri heilsufarslega útkomu. Einmanaleiki er því ekki aðeins félagslegt vandamál heldur einnig stórt heilsufarslegt viðfangsefni. Þessar þrjár víddir eru samverkandi. Það er ekki nóg að bjóða upp á fleiri rými og viðburði ef fólk skortir djúp tengsl. Og það er ekki nóg að auka aðgengi að félagsstarfi ef einstaklingur upplifir merkingarleysi eða rof í lífssamhengi sínu. Er þetta faraldur? Undanfarin ár hefur reglulega verið talað um „faraldur einmanaleika“, sérstaklega meðal eldra fólks. Íslensk gögn sýna hins vegar að einmanaleiki meðal eldra fólks hefur verið tiltölulega stöðugur undanfarin ár, þó að umtalsverður hópur upplifi sig oft einmana og þurfi markviss úrræði. Á sama tíma sjáum við æ oftar umfjöllun um einmanaleika meðal ungra foreldra, ungs fólks í námi, karla á miðjum aldri og innflytjenda. Tilfinningalegur einmanaleiki mælist til dæmis hærri meðal innflytjenda en meðal eldra fólks af íslenskum uppruna. Einmanaleiki virðist því ekki lengur bundinn við ákveðinn aldur – hann er orðinn spegilmynd samfélagsgerðar okkar. Við erum að klóra í yfirborðið Flest opinber úrræði – hérlendis sem erlendis – beinast fyrst og fremst að félagslegu víddinni: aukinni virkni, samveru og aðgengi. Allt er þetta mikilvægt og skiptir miklu máli. Alþjóðlegar samantektir benda hins vegar til þess að félagsleg inngrip ein og sér hafi oft takmörkuð áhrif á djúpan tilfinningalegan eða tilvistarlegan einmanaleika. Djúp tengsl og upplifun af tilgangi verða ekki til með skipulagi einu saman. Ef við ætlum að takast á við einmanaleika af alvöru þurfum við að spyrja dýpri spurninga: Hvar og hvernig myndast raunveruleg tengsl? Hvernig styrkjum við gagnkvæm hlutverk milli kynslóða? Hvernig byggjum við samfélag þar sem fólk upplifir að það skipti máli? Einmanaleiki sem samfélagslegt viðfangsefni Við höfum á síðustu árum endurskipulagt vinnumarkaðinn, stytt vinnuvikuna, breytt skipulagi þjónustu og aukið tæknivæðingu. Í orði kveðnu ætti þetta að hafa skapað aukið svigrúm til tengslamyndunar og betri samþættingu milli vinnu og fjölskyldulífs. En raunin virðist flóknari. Styttri vinnuvika þýðir ekki sjálfkrafa meiri nærveru. Tæknivæðing þýðir ekki sjálfkrafa dýpri samskipti. Hraði samfélagsins hefur ekki minnkað–hann hefur færst til. Við erum enn krafin um afköst og stöðuga viðveru. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur bent á að félagsleg þátttaka sem og merking í samfélaginu séu lykilþættir í farsælli öldrun. Slík þátttaka verður ekki til nema samfélagsgerð og menning styðji við hana. Ef við ætlum að draga úr einmanaleika þurfum við því að skoða ekki aðeins einstaklinginn – heldur samhengi hans. Hvað næst? Ákvörðun borgarstjórnar er tækifæri fyrir okkur öll, úti um allt land. En til að hún skili raunverulegum árangri þarf nálgunin að ná til allra þriggja vídda einmanaleikans. Við þurfum að: styðja fagfólk í þverfaglegum teymum þar sem félags- og heilbrigðisstéttir vinna saman á sameiginlegum og faglegum grunni þróa úrræði sem efla gæði tengsla, ekki aðeins magn samskipta styrkja tengsl milli kynslóða og samfélagshópa Einmanaleiki er ekki aðeins skortur á fólki í kringum okkur. Hann er skortur á innihaldsríkum og mikilvægum tengslum. Ég hvet þann stýrihóp sem nú verður myndaður til að nálgast verkefnið með allar þrjár víddir einmanaleikans að leiðarljósi — og önnur sveitarfélög til að fylgjast vel með þeirri vinnu og læra af niðurstöðunum. Ef við ætlum að sporna gegn einmanaleika er ekki nóg að búa til fleiri rými — heldur þarf samfélag þar sem fólk hefur raunverulegt hlutverk, upplifir merkingu og tilheyrir af heilum hug. Höfundur er kynslóðablandari og tómstunda- og félagsmálafræðingur. Heimildir Ayalon, L. & Tesch-Römer, C. (2018). Contemporary Perspectives on Ageism.Crewdson, J. A. (2016). The Effect of Loneliness in the Elderly Population.Halldór Guðmundsson & Sigurveig Sigurðardóttir (2024). Einmanaleiki og félagsleg einangrun eldra fólks.Helgi Guðmundsson (2025). Hagir og líðan eldra fólks.Helgi Guðmundsson & Guðný Gústafsdóttir (2023). Einangrun eldra fólks.Hoang o.fl. (2022). Interventions Associated with Reduced Loneliness.Patil, B. & Braun, K. (2024). Interventions for loneliness in older adults.World Health Organization (2015). World Report on Ageing and Health. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rannveig Ernudóttir Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar