Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. mars 2026 10:24 Annabel Schofield átti farsælan feril sem fyrirsæta og tók síðan stökkið yfir til Hollywood. Getty Velska fyrirsætan, leikkonan og leikstjórinn Annabel Schofield er látin, 62 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein í heila. Schofield er þekktust fyrir að hafa leikið Laurel Ellis í elleftu seríu af hinum geysivinsælu Dallas.
Dægurmálamiðillinn The Hollywood Reporter greindi frá andláti Schofield en hún lést í Los Angeles 28. febrúar. Í aðdraganda andlátsins hafði leikkonan stofnað GoFundMe-síðu til að borga fyrir krabbameinsmeðferðina og uppfært aðdáendur sína um stöðu mála. Schofield lék Laurel Ellis í sjónvarpsþáttunum Dallas.Getty Annabel Schofield fæddist 4. september 1963 í bænum Llanelli í Wales. Faðir hennar var breski kvikmyndaframleiðandinn John D. Schofield, sem kom meðal annars að gerð The Naked Gun: From the Files of Police Squad! (1988) Jerry Maguire (1996) og As Good As It Gets (1996). Schofield flutti ung að árum til Lundúna þar sem hún reyndi fyrir sér í módelbransanum. Það reyndist upphafið að löngum fyrirsætuferli þar sem hún sat fyrir í fjölda tískutímarita, þar á meðal á forsíðum þýsku og ítölsku útgáfanna af Vogue og fjölda tísku- og snyrtivöruherferða, þar á meðal fyrir Yves Saint Laurent, Versace, Rimmel, og Revlon. Leikur hennar í auglýsingu fyrir fatamerkið Bugle Boy Jeans árið 1988 vakti sérstaka athygli en þar sagði hún hina frægu línu: „Afsakaðu mig, eru þetta Bugle Boy jeans-buxur sem þú ert í?“ Þegar fyrirsætuferill hennar stóð hvað hæst flutti Schofield til Los Angeles og fékk hlutverk í hinum ofurvinsælu Dallas. Þar lék hún karakterinn Laurel Ellis á móti JR Ewing (Hagman) í elleftu þáttaröðinni sem var sýnd 1988. Leikferill hennar eftir það var ekki sérlega langur, hún lék í átta kvikmyndum en vann þó bak við tjöldin í myndum á borð við Doom (2005), City of Ember (2008) og The Brothers Grimm (2005) og leikstýrði sjálf myndinni Flash! (2003) Seinni hluta ferilsins stofnaði hún sitt eigið framleiðslufyrirtækið Bella Bene Productions og gaf síðan út skáldsöguna The Cherry Alignment árið 2013 sem hún byggði á reynslu sinni sem fyrirsæta. Annabel lætur eftir sig móðurina Rochelle Schofield.
Andlát Tíska og hönnun Wales Hollywood Bandaríkin Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Fleiri fréttir Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira