Hrunvarnir við Holtsnúp verði tilbúnar í ágúst Atli Ísleifsson skrifar 4. mars 2026 08:25 Myndin er frá því í desember þegar grjót féll á veginn. Enginn slasaðist. Vísir Vegagerðin hefur boðið út hrunvarnir meðfram þjóðvegi 1 við Holtsnúp við Steinafjall undir Eyjafjöllum. Staðurinn hefur verið til skoðunar um nokkurt skeið og lét Vegagerðin hanna fyrirhugað mannvirki í kjölfar banaslyss sem þar varð í mars 2025.
Á vef Vegagerðarinnar segir að verkið feli í sér að skorið sé inn í hlíðina á um 360 metra kafla og efni notað í lagfæringu vegfláa á um kílómetra löngum kafla. Hrunvarnir úr svokölluðum „gabion grindum“ verði reistar á um 300 metra kafla og þá eigi að setja púða úr styrktarlagsefni undir grindurnar. Kona lést samstundis þann 31. mars á síðasta ári þegar gríðarstórt grjót losnaði úr fjallinu og féll ofan á þak bíls sem hún ók. Rannsóknarnefnd samgönguslysa birti skýrslu um slysið fyrr á árinu þar sem kallað var eftir viðeigandi úrbótum til að bæta umferðaröryggi á svæðinu. Vegagerðin boðaði í kjölfar skýrslunnar að ráðist yrði í úrbætur á slysstaðnum. Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að verktaki skuli vinna í vegfláum jafnóðum og eftir því sem verkinu vindi fram og í lokafrágangi, en verkinu skuli að fullu lokið eigi síðar en 15. ágúst 2026. Skila skuli tilboðum fyrir 17. mars næstkomandi. Vegagerðin hefur einnig haft til skoðunar að færa veginn sem væri framtíðarlausn en töluvert kostnaðarmeiri. Við Holtsnúp er þekktur grjóthrunsstaður en frá banaslysinu í mars á síðasta ári hefur tvisvar hrunið grjót úr hlíðinni, síðast í desember með þeim afleiðingum að hætta skapaðist og ökumaður ók á grjótið. Betur fór en á horfðist þegar ökumaður ók á grjót sem féll úr Holtsnúpi í desember 2025.Vegagerðin 86 þekktir grjóthrunsstaðir Fjölmargir þekktir grjóthrunsstaðir séu við þjóðvegi landsins og varnarmannvirki hafi verið sett upp við nokkra þeirra en þörf sé fyrir fleiri slík mannvirki. Þekktir grjóthrunsstaðir við vegakerfi landsins eru nú 86 talsins samkvæmt gögnum frá Vegagerðinni og eru grjótvarnir við fimm verstu staðina. Tæplega hundrað tilvik hafa verið skráð síðustu 25 árin þar sem bílar hafa ekið á grjót. Þar af voru sex með minni háttar meiðsl en önnur án meiðsla. „Skráð tilvik um grjót á vegum hafa verið á bilinu 30 til 60 ár ári og má telja mikla mildi að ekki hafi fleiri slasast en raun ber vitni,“ segir á vef Vegagerðarinnar. Mynd eftir grjóthrun úr Reynisfjalli.Vegagerðin
Umferðaröryggi Rangárþing eystra Slysavarnir Samgöngur Tengdar fréttir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Vegagerðin segist hafa skoðað að færa þjóðveg 1 fjær Steinafjalli en telur það framtíðarlausn sem sé töluvert dýrari en hrunvarnir sem bjóða á út á næstunni. Koma þurfi upp hrunvörnum víðar en við Steinafjall þar sem erlend ferðakona lést þegar grjót hrundi á bíl hennar í fyrra. 20. janúar 2026 14:10 Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Vegagerðin hyggst setja upp svokallaðar grjótgrindur við Steinafjall þar sem banaslys varð í fyrra. Rannsóknarnefnd samgönguslysa óskaði eftir úrbótum í nýrri skýrslu. 19. janúar 2026 18:41 Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill að Vegagerðin vinni þegar í stað að úrbótum á hringveginum við Steinafjall á Suðurlandi eftir að erlend ferðakona lést þegar stærðarinnar grjót féll á bíl hennar. Líkur á slíkum slysum eru sagðar hafa aukist vegna þyngri umferðar um veginn. 19. janúar 2026 12:11 Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Ekki stendur til að bæta fallvarnir vegna grjóthruns við Holtshnúp þar sem varð banaslys í mars á þessu ári. Ráðherra segir fjármagni forgangsraðað í önnur verkefni. Það hafi komið til greina að setja upp varnir við veginn en það ekki enn komist til framkvæmdar. Íbúi við veginn segir stjórnvöld verða að forgangsraða. Það sé óásættanlegt að ekki séu varnir við veginn. 21. júní 2025 07:01 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Vegagerðin segist hafa skoðað að færa þjóðveg 1 fjær Steinafjalli en telur það framtíðarlausn sem sé töluvert dýrari en hrunvarnir sem bjóða á út á næstunni. Koma þurfi upp hrunvörnum víðar en við Steinafjall þar sem erlend ferðakona lést þegar grjót hrundi á bíl hennar í fyrra. 20. janúar 2026 14:10
Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Vegagerðin hyggst setja upp svokallaðar grjótgrindur við Steinafjall þar sem banaslys varð í fyrra. Rannsóknarnefnd samgönguslysa óskaði eftir úrbótum í nýrri skýrslu. 19. janúar 2026 18:41
Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill að Vegagerðin vinni þegar í stað að úrbótum á hringveginum við Steinafjall á Suðurlandi eftir að erlend ferðakona lést þegar stærðarinnar grjót féll á bíl hennar. Líkur á slíkum slysum eru sagðar hafa aukist vegna þyngri umferðar um veginn. 19. janúar 2026 12:11
Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Ekki stendur til að bæta fallvarnir vegna grjóthruns við Holtshnúp þar sem varð banaslys í mars á þessu ári. Ráðherra segir fjármagni forgangsraðað í önnur verkefni. Það hafi komið til greina að setja upp varnir við veginn en það ekki enn komist til framkvæmdar. Íbúi við veginn segir stjórnvöld verða að forgangsraða. Það sé óásættanlegt að ekki séu varnir við veginn. 21. júní 2025 07:01