„Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. mars 2026 09:01 Þorsteinn Leó var kominn í stærra hlutverk hjá landsliðinu þegar hann varð fyrir meiðslum í nóvember. vísir Þorsteinn Leó Gunnarsson er kominn aftur á gott skrið eftir meiðsli sem héldu honum frá keppni á EM með íslenska landsliðinu. Hann hefði viljað spila meira á því móti en eftir á að hyggja segir hann landsliðsþjálfarann hafa tekið rétta ákvörðun.
Þorsteinn meiddist í nára í nóvember síðastliðnum. Nárameiðsli eru erfið að eiga við og þó endurhæfingin hafi gengið vel fékk hann bakslag í meiðslin strax fyrstu vikuna með félagsliði sínu Porto. „Ég hélt að ég væri alveg hundrað prósent en ég var það ekki. Þá fór maður aðeins niður. Fann að ég var ekki alveg jafn heill og ég hélt. Svo þurfti maður bara að byggja styrkinn upp aftur og nú er þetta komið á góðan stað, þó styrkurinn sé ekki alveg á þeim stað sem ég vil þá getur maður spilað og svona.“ Þorsteinn er hávaxin skytta og annað af tveimur stórum spurningamerkjum hjá íslenska landsliðinu á síðasta stórmóti: Hvað ef Elvar Örn hefði ekki meiðst og hvað ef Þorsteinn Leó hefði verið með á mótinu? Það er ómögulegt að segja, en Þorsteinn hefði viljað spila meira en hann gerði. „Klárlega. Maður hefði auðvitað viljað spila en svo þegar maður spáir aftur í þetta, var ég hundrað prósent? Var ég klár í að spila 20-30 mínútur? Maður veit það ekki. Kannski hefði ég verið það, kannski ekki. Við tókum ekki sénsinn á því en klárlega hefði maður viljað spila og það hefði verið geggjað að vera ekki meiddur fyrir mót. Maður fann líka í undirbúningnum fyrir mótið, æfingaleikjunum áður en ég meiddist, að ég var kominn í aðeins stærra hlutverk innan liðsins. Svo meiðist ég og er kominn á byrjunarreit aftur. Þetta var leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum.“ Hans hæfileikar voru þó nýttir í tveimur tilfellum, þegar Ísland þurfti skot beint úr fríkasti. „Og klúðraði báðum. Við vorum búnir að æfa þetta alveg og það fór allt í skeytin á æfingasvæðinu.“
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Portúgalski boltinn Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira