Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Smári Jökull Jónsson skrifar 2. mars 2026 11:55 Veðrið hefur nú þegar haft mikil áhrif á færð á vegum fyrir austan. Vísir/Vilhelm Skólahaldi var aflýst í tveimur skólum í Múlaþingi í morgun vegna veðurs og þá loka skólar í Fjarðabyggð á hádegi. Hringveginum um Mývatn og Möðrudalsöræfi var lokað í morgun og ekki er búist við að hann opni á ný fyrr en í fyrramálið.
Appelsínugul viðvörun vegna norðvestan stórhríðar tekur gildi á austanverðu landinu klukkan eitt en gul viðvörun er í gildi. Búist er við norðvestan 20-28 metrum á sekúndu með snjókomu og skafrenningi og eru íbúar beðnir um að huga að lausamunum og gera varrúðarráðstafanir til að fyrirbyggja foktjón. Áhrif á skólahald Skólahald var með eðlilegum hætti í Fjarðabyggð í morgun en þar verður skólum lokað á hádegi og þá hefur veðrið einnig áhrif áhrif á opnunartíma ýmissa stofnana. Í Múlaþingi var skólahaldi aflýst bæði í Brúarásskóla og á Borgarfirði sem og öllum skólaakstri úr drefibýli til Egilsstaða og Fellabæjar. Foreldrar eru beðnir um að fylgjast með skilaboðum frá skólum þar sem skólastarf er í gangi ef senda þarf nemendur fyrr heim. Líklega lokað í allan dag Í morgun lokaði hringvegurinn um Mývatn og Möðrudalsöræfi og þá eru vegirnir um Vopnafjarðarheiði, Fjarðarheiði og Fagradal sömuleiðis lokaðir. „Það þýðir ekkert að reyna að komast neitt á milli. Það er eiginlega alls staðar lokað á milli kjarna og þegar það er lokað þá má ekkert fara. Þá eru bara lokunarpóstar fyrir og fólk á ekkert að fara þar fram hjá og verður bara að bíða til morguns,“ sagði Sveinbjörn Hjálmarsson þjónustufulltrúi hjá Vegagerðinni í viðtali sem tekið var í morgun. „Við erum að stefna á að þetta verði lokað eiginlega allt saman út daginn vegna veðurs.“ Gul viðvörun tók gildi á norðausturlandi klukkan ellefu en þar ætti veðrið ekki að hafa teljandi áhrif á færð og vindátt á Öxnadalsheiði hagstæð. „Það verða ekkert engar lokanir þar en kannski svolítið blint enda snjóar mjög mikið á Tröllaskaga og alls staðar. Það er snjóflóðahætta á Ólafsfjarðarmúlanum og Siglufjarðarvegi. Það er mjög mikil snjókoma og éljagangur og fer aðeins að bæta í vindinn,“ sagði Sveinbjörn nú fyrir hádegið.
Veður Færð á vegum Fjarðabyggð Múlaþing Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Sjá meira