Körfubolti

Kári að verða pabbi og Haukur meiddur

Sindri Sverrisson skrifar
Craig Pedersen varð að skilja Hauk Helga Pálsson eftir á Íslandi eftir að hann meiddist.
Craig Pedersen varð að skilja Hauk Helga Pálsson eftir á Íslandi eftir að hann meiddist. vísir/Hulda Margrét

Tvær breytingar hafa verið gerðar á íslenska landsliðshópnum í körfubolta fyrir seinni leikinn við Litáen í undankeppni HM.

Íslenski hópurinn ferðaðist til Litáens í gærmorgun eftir sigurinn frækna gegn Litáen í Laugardalshöll á föstudaginn. Leikurinn við heimamenn er á morgun klukkan 16:30 að íslenskum tíma.

Tveir leikmenn hafa helst úr lestinni síðan á föstudaginn því Haukur Helgi Pálsson verður ekki með vegna meiðsla og þá fékk Kári Jónsson leyfi þar sem hann er að verða pabbi á næstu dögum.

Í þeirra stað koma tveir leikmenn Álftaness, þeir Sigurður Pétursson og Ragnar Nathanaelsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×