Skúrkur Freys: Gátum gert eitthvað stórkostlegt, og svo klúðra ég því Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2026 22:25 Jacob Lungi Sörensen, leikmaður Brann, fékk rauða spjaldið á 37. mínútu og skildi liðið sitt eftir tíu á móti ellefu í úrslitaleik um sæti í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Getty/Alessandro Sabattini Jacob Lungi Sörensen, leikmaður Brann, tók á sig alla ábyrgð eftir að hann fékk rautt spjald á 38. mínútu í 1-0 tapi Brann á móti Bologna í umspili Evrópudeildarinnar. Brann mistók því að komast í sextán liða úrslit og Evrópuævintúri Freys Alexanderssonar og lærisveina hans er lokið.
Brann var búið að gera vel í leiknum en liðið tapaði fyrri leiknum 1-0 á heimavelli og þurfti því sigur. Bologna skoraði sigurmarkið í kvöld einum manni fleiri. „Mér finnst við hafa tækifæri hér til að gera eitthvað stórkostlegt, og svo klúðra ég því. Þeir eiga það ekki skilið og ég tek hundrað prósent ábyrgð á því,“ sagði Jacob Lung Sørensen við Viaplay en NRK sagði frá. Hann fór í tæklingu með fótinn hátt uppi fótinn, sem lenti í læri á leikmanni Bologna. Dómarinn var ekki í vafa og dró upp rauða spjaldið og Brann þurfti að spila manni færri á vellinum í meira en fimmtíu mínútur. „Við vorum óheppnir með rauða spjaldið,“ sagði íslenski landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson við Viaplay í hálfleik. „Þetta er bara tækling og hann misreiknar sig. Mér finnst þetta ekki vera rautt spjald, mér finnst þetta óheppni, en hann hittir hann,“ sagði Jón Dagur sem var mjög nálægt atvikinu. Erik Huseklepp, sérfræðingur Viaplay, var sammála Brann-liðinu og telur ákvörðunina hafa verið of stranga. „Hann reynir að draga fótinn til sín, það hefði dómarinn átt að sjá. Þá hefði VAR getað skoðað það,“ telur Huseklepp. Carl Erik Torp, sérfræðingur NRK, er hins vegar tvístígandi í afstöðu sinni til brottvísunarinnar. „Þetta er klaufalegt hjá Sørensen sem kemur sér í þessa stöðu. Hann tekur áhættu þarna. Hann reynir að draga sig til baka en snertingin er augljós. Þá er erfitt að segja neitt við þá ákvörðun. Þetta er mjög miður fyrir Brann, því þeir litu frábærlega út fyrstu 35 mínúturnar. Þetta verður beinlínis úrslitaatriði fyrir möguleika Brann,“ sagði Torp.
Evrópudeild UEFA Norski boltinn Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Sjá meira