Blatter lætur „sólkonunginn“ Infantino heyra það: „FIFA er orðið einræðisríki“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2026 06:30 Alþjóðaknattspyrnusambandið hefur verið undir stjórn Gianni Infantino síðustu tíu árin en hann tók við af Sepp Blatter á sínum tíma. Getty/Chip Somodevilla/Sathiri Kelpa Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, gengur nú skefi lengra í gagnrýni sinni á eftirmann sinn og landa, Gianni Infantino.
Alþjóðaknattspyrnusambandið hefur verið undir stjórn Infantino síðustu tíu árin. Blatter var sjálfur umdeildur forseti FIFA, en það kemur ekki í veg fyrir að Svisslendingurinn gagnrýni núverandi stjórn harðlega. Hvað er FIFA í dag? „Hvað er FIFA í dag? Það samanstendur bara af forsetanum, Infantino. FIFA er einræðisríki! Stjórnin, með næstum 40 meðlimum, hefur ekkert að segja,“ sagði Blatter í viðtali við þýska vikuritið Sport Bild. HINN 89 ára gamli Blatter, sem var háttsettur hjá FIFA frá 1981 til 2015, telur að völdin hafi stigið Infantino til höfuðs. Eins og sólkóngur „Hann stjórnar eins og sólkóngur (vísun í Loðvík fjórtánda Frakkakonung). Ég hef heyrt frá fólki innan FIFA að hann vilji ekki láta heilsa sér þegar hann mætir í höfuðstöðvarnar,“ sagði Blatter. Loðvík 14. var mjög dáður Frakklandskonungur, á tíðum jafnvel sem guð. Hann bjó í hinni glæstu Versalahöll þar sem þjónustulið snerist í kringum hann eins og skopparakringlur. Hann var oft kallaður sólkonungurinn, en það loddi við hann frá því hann lék sólina í leikriti í æsku. Friðarverðlaunin Trump óskiljanleg Hann gagnrýnir einnig harðlega hvernig Infantino hefur hagað sér sem „meðhlaupari“ Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, í aðdraganda HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í ár. „Friðarverðlaunin til Trump eru óskiljanleg. Infantino er að smjaðra fyrir Trump því hann þarf á honum að halda,“ sagði Blatter. Blatter var forseti FIFA í sautján ár. Hann neyddist til að segja af sér árið 2015 eftir nokkur hneykslismál. Á síðasta ári voru hann og Michel Platini, fyrrverandi forseti UEFA, enn og aftur sýknaðir af ákærum um spillingu. Áður en Blatter varð forseti FIFA var hann framkvæmdastjóri sambandsins í önnur sautján ár eða frá 1981 til 1998. Hann var því háttsettur hjá Alþjóðaknattspyrnusambandinu í 34 ár.
FIFA Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira