Dóttir Short fannst látin Magnús Jochum Pálsson skrifar 25. febrúar 2026 14:07 Feðginin Martin Short og Katherine Elizabet Short á Óskarnum árið 2011. Getty Katherine Short, ættleidd dóttir leikaranna Martins Short og Nancyar Dolman, er látin, 42 ára að aldri. Katherine var félagsráðgjafi og elsta barn þeirra hjóna. „Það er með mikilli sorg sem við staðfestum andlát Katherine Hartley Short,“ sagði talsmaður Martins Short í tilkynningu. „Short-fjölskyldan er eyðilögð eftir þennan missi og óskar eftir næði á þessum tíma. Katherine var elskuð af öllum og verður minnst fyrir ljósið og gleðina sem hún kom með inn í heiminn.“ Götumiðillinn TMZ greindi fyrst frá andláti Short en hún fannst látin á heimili sínu í Hollywood Hills í Los Angeles á mánudagskvöld. Los Angeles Times hefur eftir lögreglunni á svæðinu að Katherine hafi stytt sér aldur. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Ættleidd ásamt bræðrum sínum Foreldrar Katherine, Martin Short og Nancy Dolman, kynntust árið 1972 þegar þau unnu saman við myndina Godspell (1973) og giftu sig árið 1980. Í kjölfarið ættleiddu þau börn sín þrjú Katherine, Henry og Oliver. Katherine hélt sig fjarri sviðsljósinu en mætti stundum með föður sínum á viðburði á rauða dreglinum. Martin Short, Nancy Dolman og systkinin Katherine Elizabeth og Oliver Patrick.Getty Katherine var með BA-græður í sálfræði og kynjafræði frá New York University og meistaragráðu í félagsráðgjöf frá University of Southern California. Hún vann sem klínískur félagsráðgjafi og hjá góðgerðarstofuninni Bring Change 2 Mind sem einblíndi á að valdefla ungt fólk til að byggja samtengd skólasamfélög þar sem „umræða um geðheilbrigðismál er velkomin og laus við skömm“. Nancy Dolman, móðir Katherine, lést 58 ára úr krabbameini í eggjastokkum árið 2010 og sagði ekkillinn Short í viðtali við Guardian að árin sem fylgdu hefðu verið erfið. Meryl Streep og Martin Short eru líklega meðal hæfileikaríkustu leikara í Hollywood.Michael Buckner/Variety/Getty Images Martin á farsælan gamanferil að baki og hefur síðustu árið leikið í morðgátuþáttunum Only Murders in the Building við góðan orðstír. Hann endurnýjaði þar kynni sín við leikkonuna Meryl Streep og hafa þau verið að stinga saman nefjum upp á síðkastið. Undanfarið hefur Martin verið að túra um Bandaríkin með Steve Martin, vini sínum til áratuga og mótleikara úr morðgátuþáttunum, með uppistandsseríuna The Best of Steve Martin and Martin Short. Áttu þeir að koma fram í Milwaukee og Minneapolis um helgina en því hefur nú verið frestað. Bíó og sjónvarp Andlát Bandaríkin Hollywood Mest lesið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Bob Mackie er látinn Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira
„Það er með mikilli sorg sem við staðfestum andlát Katherine Hartley Short,“ sagði talsmaður Martins Short í tilkynningu. „Short-fjölskyldan er eyðilögð eftir þennan missi og óskar eftir næði á þessum tíma. Katherine var elskuð af öllum og verður minnst fyrir ljósið og gleðina sem hún kom með inn í heiminn.“ Götumiðillinn TMZ greindi fyrst frá andláti Short en hún fannst látin á heimili sínu í Hollywood Hills í Los Angeles á mánudagskvöld. Los Angeles Times hefur eftir lögreglunni á svæðinu að Katherine hafi stytt sér aldur. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Ættleidd ásamt bræðrum sínum Foreldrar Katherine, Martin Short og Nancy Dolman, kynntust árið 1972 þegar þau unnu saman við myndina Godspell (1973) og giftu sig árið 1980. Í kjölfarið ættleiddu þau börn sín þrjú Katherine, Henry og Oliver. Katherine hélt sig fjarri sviðsljósinu en mætti stundum með föður sínum á viðburði á rauða dreglinum. Martin Short, Nancy Dolman og systkinin Katherine Elizabeth og Oliver Patrick.Getty Katherine var með BA-græður í sálfræði og kynjafræði frá New York University og meistaragráðu í félagsráðgjöf frá University of Southern California. Hún vann sem klínískur félagsráðgjafi og hjá góðgerðarstofuninni Bring Change 2 Mind sem einblíndi á að valdefla ungt fólk til að byggja samtengd skólasamfélög þar sem „umræða um geðheilbrigðismál er velkomin og laus við skömm“. Nancy Dolman, móðir Katherine, lést 58 ára úr krabbameini í eggjastokkum árið 2010 og sagði ekkillinn Short í viðtali við Guardian að árin sem fylgdu hefðu verið erfið. Meryl Streep og Martin Short eru líklega meðal hæfileikaríkustu leikara í Hollywood.Michael Buckner/Variety/Getty Images Martin á farsælan gamanferil að baki og hefur síðustu árið leikið í morðgátuþáttunum Only Murders in the Building við góðan orðstír. Hann endurnýjaði þar kynni sín við leikkonuna Meryl Streep og hafa þau verið að stinga saman nefjum upp á síðkastið. Undanfarið hefur Martin verið að túra um Bandaríkin með Steve Martin, vini sínum til áratuga og mótleikara úr morðgátuþáttunum, með uppistandsseríuna The Best of Steve Martin and Martin Short. Áttu þeir að koma fram í Milwaukee og Minneapolis um helgina en því hefur nú verið frestað.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Bíó og sjónvarp Andlát Bandaríkin Hollywood Mest lesið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Bob Mackie er látinn Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira