Endurnýjuðu gæsluvarðhald yfir grunuðum barnaníðingi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. febrúar 2026 14:03 Atvik málsins urðu í Hafnarfirði. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm Karlmaður á fimmtugsaldri sem sætir ákæru fyrir kynferðisbrot gegn barni á heimili þess í Hafnarfirði í september í fyrra hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Hann er einnig ákærður fyrir vændiskaup.
Karlmaðurinn, Helgi Bjartur Þorvarðarson, hafði gengið laus síðan hann var handtekinn grunaður um verknaðinn í september. Eftir að rannsókn lögreglu á málinu lauk í janúar ákvað héraðssaksóknari að krefjast gæsluvarðhalds yfir Helga Bjarti. Héraðsdómur hafnaði beiðninni, sá ekki ástæðu til að færa hann í varðhald, en Landsréttur sneri þeirri niðurstöðu við. Helgi Bjartur hefur því sætt gæsluvarðhaldi frá 14. janúar. Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari segir að fallist hafi verið á áframhaldandi gæsluvarðhald til fjögurra vikna þegar hið fyrra rann út þann 6. febrúar síðastliðinn. Hann sætir ákæru fyrir að nauðga tíu ára dreng með því að hafa við hann önnur kynferðismök en samræði og að reyna að hafa við hann samræði. Þá er hann einnig ákærður fyrir að hafa greitt fyrir vændi í Bolholti í Reykjavík sama kvöld. Helgi Bjartur hefur sagst ekki vera sekur um þau brot sem hann er sakaður um, hann hafi fallið á áfengisbindindi umrætt kvöld og verið í „black-out ástandi“ en hann hafi það ekki í sér að vera fær um að gera það sem hann sé sakaður um. „Það sem ég er sakaður um að hafa gert er mér sjálfum óskiljanlegt og hefur sett líf mitt og fjölskyldu minnar í rúst. Það eina sem ég veit er að í því húsi sem sagt er að ég hafi farið inn í þessa nótt býr kona sem ég taldi á þessum tímapunkti bestu vinkonu mína. Ég skil að orð mín breyta ekki þeirri upplifun og þeim ótta sem barn og fjölskylda þess bera. Ég finn til með barninu og fjölskyldu þess vegna þess ótta og sársauka sem þau upplifa í dag. Ég mun aldrei geta afturkallað það að hafa fallið á bindindi mínu, en tek aftur fram að ég er ekki sekur um það sem ég er ákærður fyrir,“ sagði Helgi Bjartur í yfirlýsingu til fjölmiðla í janúar.
Grunaður um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði Lögreglumál Hafnarfjörður Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira