Spá því að verðbólgan fari rétt undir fimm prósent en óvissan er upp á við
Útlit er fyrir að tólf mánaða verðbólgan geti farið aftur undir fimm prósent þegar ný mæling birtist síðar í vikunni, ef marka má meðalspá sex greinenda, en sumir benda á að óvissan sé upp á við í spánum og vara við annarrar umferðar áhrifum af hærri verðbólgu á næstunni.
Tengdar fréttir
Óttast samdrátt og atvinnuleysi sem ekki sé hægt að mæta með vaxtalækkun
Miðað við dekkri verðbólguspá til skamms tíma þá kallar hún „alls ekki“ á vaxtalækkun í bráð, að sögn seðlabankastjóra, sem varar við því að mögulega sé að teiknast upp sú staða að hagkerfið kunni að sigla í samdrátt og aukið atvinnuleysi sem ekki verði hægt að mæta með því að ráðast í lækkun vaxta. Seðlabankinn hefur ekki fengið neina kynningu á hugmyndum stjórnvalda um skref til afnáms verðtryggingar, meðal annars að gera kröfu um lágmarksafborgun inn á lán, og telur að slíkar aðgerðir ættu fremur að vera á borði fjármálastöðugleikanefndar.