Nýtt verk frá Martin en samt kvarta aðdáendur Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. febrúar 2026 15:14 George R. R. Martin, höfurnur A Song of Ice and Fire bókanna, hefði viljað fá hundrað þætti af Game of Thrones. Getty/Liam McBurney Nýja leikritið The Mad King, sem byggir á atburðum sem eiga sér stað fyrir sögu Krúnuleika George R.R. Martin, verður frumsýnt í sumar. Leikritið gerist kvöldið fyrir burtreiðarmót sem leggur grunninn að falli Targaryen-ættarinnar. Aðdáendur ergja sig á því að Martin sé enn að stækka heim seríunnar meðan hann trassar skrif bókarinnar The Winds of Winter.
Martin tilkynnti komu leikritsins á vef sínum Not A Blog. Leikritið gerist fyrir atburði Krúnuleika, fyrstu bókarinnar í seríunni Söngur um ís og eld, í kastalanum Harrenhal þangað sem Whent lávarður hefur boðið öllum helstu ættum konungsríkisins. „Langur vetur þiðnar í Harrenhal og vori er lofað. Við íburðarmikla stórveislu að kvöldi burtreiðarmóts mætast elskendur og slarkarar velta því fyrir sér hverjir muni keppa. Í skuggunum, innan um vaxandi ólgu vegna blóðugra aðgerða hins miskunnarlausa brjálaða konungs, skipuleggja andófsmenn úr hans innsta hring samsæri gegn honum,“ segir í lýsingu verksins. Til veislunnar er búið að bjóða þekktum mönnum á borð við Rhaegar Targaryen, Eddard Stark, Robert Baratheon, ungum Jaime Lannister, hinu ógurlega Fjalli og Aerys II Targaryen, hinum brjálaða konungi. Aegon hinn óði var síðasti konungur Targaryen-fjölskyldunnar. „Þið hafið heyrt af burtreiðunum við Harrenhal síðan Krúnuleikarnir komu út 1996. Núna loksins munum við sýna ykku hana... lifandi á sviði í Stratford-upon-Avon á vegum Royal Shakespeare Company,“ skrifar Martin um leikritið á síðu sinni. Hann segist jafnframt vera gríðarlegur Shakespeare-aðdáandi og það komi sennilega engum á óvart að söguleikrit séu uppáhaldið hans. Leikritið verður skrifað og aðlagað af leikskáldinu Duncan MacMillan, sem er þekktastur fyrir að hafa skrifað leikritið People, Places and Things, og því verður leikstýrt af Dominic Cooke. Þrjár seríur ókláraðar Áhorfendur Martin og seríu hans hafa tekið misvel í fregnirnar. Margir fagna komu leikritsins meðan aðrir pirra sig á því að þessir atburðir birtist fyrst á leiksviði frekar en í bókum höfundar. Svo eru margir gramir yfir því að Martin geti ekki hætt að taka að sér ný verkefni þegar Martin hefur verið fimmtán ár að skrifa The Winds of Winter, fimmtu bókina í Söngi um ís og eld, og er hvergi nálægt því að vera búinn með hana. „Söngur um ís og eld er eina serían sem mér dettur í hug sem hefur getið af sér þrjár sjónvarpsaðlaganir þar sem ekki er búið að klára frumefnið sem þær byggja á og verður aldrei, það er hlægilegt,“ skrifaði einn aðdáenda á umræðiþræði. Vísaði viðkomandi þar í sjónvarpsþættina Game of Thrones, The House of Dragon og A Knight of the Seven Kingdoms. „Þetta eru fréttir sem væri mjög gaman að lesa um ef það væri búið að klára bækurnar. Eins og stendur er þetta bara frekar pirrandi. Að því sögðu, ef þetta gengur vel, sé ég þetta sem það loksins fær George til að samþykkja sjónvarpsþátt um uppreisn Roberts,“ skrifaði annar og vísar þar í uppreisnina sem gerist fyrir atburði Krúnuleika. Fyrr á árinu var Martin staddur á ráðstefnunni WorldCon þegar aðdáandi spurði hann hvort hann ætlaði ekki að láta annan höfund sjá um að klára seríuna fyrst hann ætti ekki mikið eftir ólifað.
Bretland Game of Thrones Leikhús Tengdar fréttir Kynntu nýja þætti úr söguheimi Game of Thrones og Harry Potter Streymisveitan HBO Max mun fá nýtt nafn, „Max“, á næstu vikum og til stendur að gera nýja þætti úr söguheimi Game of Thrones og um Harry Potter. Þetta kom fram á kynningu hjá Warner Bros. Discovery í gær. 13. apríl 2023 14:11 Ný bók frá George R. R. Martin í nóvember Höfundur bókanna um Krúnuleikana tilkynnir nýja bók, þó ekki þá sem aðdáendur hafa beðið eftir. 27. apríl 2018 13:16 Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Bob Mackie er látinn Lífið Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Lífið Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira
Kynntu nýja þætti úr söguheimi Game of Thrones og Harry Potter Streymisveitan HBO Max mun fá nýtt nafn, „Max“, á næstu vikum og til stendur að gera nýja þætti úr söguheimi Game of Thrones og um Harry Potter. Þetta kom fram á kynningu hjá Warner Bros. Discovery í gær. 13. apríl 2023 14:11
Ný bók frá George R. R. Martin í nóvember Höfundur bókanna um Krúnuleikana tilkynnir nýja bók, þó ekki þá sem aðdáendur hafa beðið eftir. 27. apríl 2018 13:16