„Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 19. febrúar 2026 13:05 Gunnar Þór Geirsson er formaður Félags íslenskra heimilislækna. vísir/getty Formaður Félags heimilislækna gefur lítið fyrir markaðsefni fyrirtækisins Intuens og segir heilskoðanir gera meira slæmt en gott þrátt fyrir nokkrar jákvæðar dæmisögur. Hraust fólk hafi í kjölfar skoðunar hjá fyrirtækinu farið í óþarfa aðgerðir eða meðferð sem hafi valdið því skaða.
Intuens býður upp á svonefnda heilskoðun á líkama í því skyni að greina kvilla og sjúkdóma. Fyrirtækið hefur undanfarið sótt í sig veðrið á nýjan leik eftir að ýmsar áskoranir undanfarin ár. 300 þúsund krónur fyrir skoðun Til dæmis hætti fyrirtækið að bjóða upp á heilskimun tímabundið í lok árs 2023 eftir töluverða gagnrýni lækna og seinna bannaði landlæknir starfsemina en heilbrigðisráðuneytið felldi þá ákvörðun úr gildi. Töluvert hefur farið fyrir markaðsefni frá fyrirtækinu á síðustu mánuðum þar sem ýmsir aðilar úr þjóðfélaginu hafa deilt reynslusögum sínum af því að nýta þjónustuna sem almennir viðskiptavinir greiða 300 þúsund krónur í hvert skipti. Í Íslandi í dag í gær var til að mynda rætt við mann sem segir að krabbamein á öðru stigi hafi fundist í kjölfar heilskoðunar. Á þeim tíma hafi hann að mestu verið án einkenna en svo vildi til að dóttir hans starfar hjá fyrirtækinu. Í næstu viku verður mál Intuens gegn íslenska ríkinu og Sjúkratryggingum Íslands tekið fyrir hjá héraðsdómi. Þar vill fyrirtækið meina að ríkið hafi bakað sér skaðabótaskyldu með því að bjóða ekki út skoðunarþjónustu með réttum hætti. Heilsukvíði og óþarfa inngrip Gunnar Þór Geirsson, formaður Félags íslenskra heimilislækna, segir þjónustu Intuens gera meira slæmt en gott þrátt fyrir einstaka jákvæða reynslusögu. „Það sem manni hefur fundist vanta í umræðuna um þessar heilskimanir er að það hafa ekki verið gerðar neinar rannsóknir sem sýna fram á að þetta sé gagnlegt. Þær geta valdið skaða þessar skoðanir í raun og veru.“ Þjónustan efli og valdi jafnvel heilsukvíða. Hann segist vita mörg dæmi þess að fólk hafi gengist undir stórtæk inngrip á líkama að óþörfu. „Þessi skimun ýtir undir það sem við köllum ofgreiningar og oflækningar. Oft er þetta hraust fólk sem kennir ekki meins sem fer í þessar skimanir. Stundum finnst eitthvað og það er kannski smávægilegt eins og lítil blaðra eða eitthvað sem við vitum ekki hvað er. Því að það er óvissa um það þá þarf að fylgja því eftir. Það eru til dæmis til góðar rannsóknir um hnúta í lungum og ef þeir eru undir ákveðnri stærð þá eru 90 til 95 prósent líkur að þeir séu góðkynja. Fyrst þeir finnast þarf að fylgja þeim eftir og það kallar á rannsóknir. Þá ertu með hraustan einstakling sem er farinn að hafa óþarfa áhyggjur. Hann er allt í einu farinn að nota tíma og fjármuni í að fylgja þessu eftir.“ Hann segir marga leita á heilsugæslu í kjölfar skoðunar og auka þar með álag í heilbrigðiskerfinu. „Og líka bara það að heilbrigðiskerfið, sem á í fullu fangi með að sinna veikum einstaklingum sem eru sannarlega veikir eru allt í einu kominn með auka verkefni að fylgja eftir hraustum einstaklingum til lengri tíma. Mér skilst að það getur komið fyrir að þeir finni eitthvað alvarlegt sem er samt sjaldgjæft. Síðan eru þessi gráu svæði sem eru í miklum meirihluta eðlilegt það endar á borði heilsugæslunnar. “ Tilvik þar sem fólk að ástæðulausu laggst inn á spítala Að hans sögn finnist eitthvað við skoðun sem sé ekki alvarlegt en þurfi þó að fylgja eftir með til dæmis sýnatöku. „Sýnataka úr líffærum getur haft ákveðna hættu í för með sér. Þá er kannski verið að setja fólk í hættu sem hefði ekki þurft að lenda í því. Ég veit um tilvik þar sem fólk hefur fengið fylgikvilla út af þessum inngripum og jafnvel þurft að leggjast inn á spítala og leggst þá inn á spítala að óþörfu. Það tekur bæði tíma og verðmæti frá heilbrigðiskerfinu.“ Hann segir ekki vera gagn af heilskoðunum ef könnuð eru áhrif á stærri hópa. „Fólk er kannski sett í þá stöðu að það er búið að skilgreina það með möguleg veikindi. Síðan reynast þau ekki vera það og það getur valdið áhyggjum og skert lífsgæði hjá fólki. Það eru engar rannsóknir sem sýna fram á minni dánartíðni vegna þessara skoðana. Það geta komið eitt og eitt tilvik þar sem finnst eitthvað sem kemur einstaklingi til góða einstaka sinnum.“ Hann segir mikilvægt að það fari fram umræða um neikvæðu áhrifin af þjónustunni einnig. „Auðvitað held ég að það sé mikilvægt að fagfélög lækna og fleiri haldi því á lofti að þetta sé ekki svona. Þessi rannsókn er ekki af hinu góða og líklegri til að valda skaða en að hún komi að gagni ef að maður tekur svona stóran hóp af fólki.“
Heilbrigðismál Heilskimanir Mest lesið Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Innlent „Við erum að laga Ísland“ Innlent Fleiri fréttir Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Sjá meira