Stækkaði typpi skíðastökkvara Sindri Sverrisson skrifar 18. febrúar 2026 11:32 Stærðin skiptir máli þegar menn kljúfa loftið í skíðastökki. Getty/Alex Pantling Sterkur orðrómur hefur verið uppi um að keppendur í skíðastökki karla á Vetrarólympíuleikunum hafi látið stækka getnaðarlim sinn, í von um meiri árangur á leikunum. Nú hefur lýtalæknir svo gott sem staðfest orðróminn.
Það var þýski miðillinn Bild sem greindi fyrst frá því að það þekktist í skíðastökksheiminum að menn létu sprauta hýalúronsýru í reður sinn og stækka hann þannig tímabundið, með það í huga að mega þá klæðast örlítið stærri keppnisbúningi. Strangar reglur gilda nefnilega um hve þröngir búningarnir eiga að vera en hver fermillímetri getur hjálpað mönnum að svífa örlítið lengra og þannig jafnvel skilið á milli gulls og silfurs. Nú hefur lýtalæknirinn Alessandro Littara staðfest að hið minnsta einn skíðastökkvari hafi látið stækka á sér typpið. Sá notaði þó aðra ástæðu fyrir því en þá að vilja ná árangri í sinni íþróttagrein en var ekki endilega að segja satt, eins og Littara bendir sjálfur á. „Varðandi þessar fréttir sem hafa verið til umræðu þá meðhöndlaði ég vissulega íþróttamann úr þessari íþróttagrein. En ég mun auðvitað ekki gefa upp nafn hans eða þjóðerni, né segja til um hvort hann er þátttakandi á þessum Ólympíuleikum,“ sagði Littara við USA Today. „Ég get hins vegar staðfest að ég meðhöndlaði hann í síðasta mánuði og notaði ríflegan skammt af hýalúronsýru,“ sagði Littara sem kveðst hafa stækkað typpi tímabundið með þessum hætti meira en 3.000 sinnum. Áður hafði alþjóða skíðasambandið lýst fréttunum sem „klikkuðum orðrómi“ en alþjóða lyfjaeftirlitið ætlaði að kanna málið og sjá hvort að um mögulegt brot á lyfjareglum væri að ræða. Littara segir skíðastökkvarann sem leitaði til hans hafa viljað stækka typpið því honum þætti vandræðalegt að afklæðast í búningsklefanum eftir keppni. „Ég get ekki sagt til um það hvort hann var að segja alveg satt. En okkur tókst alla vega vel til og komum fyrir mjög veglegum skammti af hýalúronsýru. Áhrifin koma strax, svo íþróttamaðurinn gat klætt sig í nýjan búning örfáum mínútum síðar,“ sagði Littara.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Handbolti Fleiri fréttir Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Stúkan: FH í miklum vandræðum Elín Klara sænskur meistari Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Erfiður dagur á skrifstofunni Bruno bætti metið eða hvað? Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Dagskráin í dag: Lokaumferð enska boltans Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Kane með þrennu í úrslitaleik Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Sjá meira