Þrjátíu leikja bann: Hljóp reiður inn á og í áttina að Elíasi Aron Guðmundsson skrifar 17. febrúar 2026 11:41 Stuðningsmaðurinn var ekki sáttur með Elías í leik Brann og Midtjylland í Evrópudeildinni á dögunum og hjóp inn á völlinn í áttina að Íslendingnum. Mynd: Brann Stuðningsmaður norska liðsins Brann, sem hljóp inn á völlinn í viðureign liðsins gegn Midtjylland í Evrópudeildinni í fótbolta á dögunum og í áttina að Elíasi Rafni Ólafssyni markverði danska liðsins, hefur verið dæmdur í þrjátíu leikja bann og krefst Brann skaðabóta frá honum.
Brann greinir frá þessu í fréttatilkynningu sem birtist á heimasíðu félagsins núna í morgun. Umræddur stuðningsmaður virðist hafa verið orðinn verulega pirraður á Elíasi Rafni í marki Midtjylland og ætlað að taka málin í sínar eigin hendur. Forráðamenn Brann líta málið alvarlegum augum og eru þakklátir fyrir það að Noah Holm, leikmaður Brann, hafi náð að stöðva stuðningsmanninn áður en hann náði til Elíasar. „Ef Noah hefði ekki stöðvað hann þá hefði umræddur einstaklingur náð til markvarðar Midtjylland og afleiðing þess hefði verið sú að við hefðum þurft að spila næsta leik fyrir framan tómar völl,“ segir Christian Kalvenes, framkvæmdastjóri Brann í fréttatilkynningu félagsins. Brann hefur ákveðið að setja umræddan stuðningsmann í þrjátíu leikja bann frá því að mæta á leiki liðsins. Þar að auki mun félagið krefjast þess að maðurinn greiði þeim skaðabætur að upphæð 5000 evrur, eða því sem nemur um 700 þúsund íslenskum krónu. Sú upphæð er sú sama og UEFA sektaði Brann um vegna atviksins. Leik liðanna lyktaði með 3-3 jafntefli en svo fór að Midtjylland endaði í 3.sæti deildarkeppni Evrópudeildarinnar og tryggði sér þar með beint sæti í sextán liða úrslitum keppninnar. Brann endaði í 24.sæti og komst áfram í umspil fyrir sextán liða úrslitin þar sem liðið mætir Bologna frá Ítalíu í tveggja leikja einvígi.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Sjá meira