Selja Ólympíusmokkana á netinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2026 10:32 Ólympíusmokkarnir hafa rokið út í Mílanó og Cortina en sumir hafa reynt að selja þá frekar en að nota þá sjálfir. Getty/Maja Hitij Eftirspurnin eftir Ólympíusmokkunum á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina hefur búið til kapphlaup á netinu þar sem fólk er tilbúið að borga vel til að komast yfir smokkana.
Í Ólympíuþorpinu í Mílanó kláruðust smokkarnir á nokkrum dögum. Sumir þeirra hafa birst til sölu á markaðstorginu Vinted fyrir háar fjárhæðir. Þetta kemur fram í frétt ítalska dagblaðsins Corriere della Sera. Þar segir að smokkarnir séu boðnir til sölu á 105,70 evrur stykkið, sem jafngildir rúmum fimmtán þúsund krónum miðað við gengi dagsins í dag. Þegar hefur verið pöntuð ný sending með fimm þúsund smokkum í þorpið þar sem Ólympíufararnir búa. Fyrr á Ólympíuleikunum var greint frá því að tíu þúsund smokkar sem dreift hafði verið til íþróttafólksins í Cortina d'Ampezzo hefðu verið rifnir út og nú hefur það sama gerst í Mílanó. Tíu þúsund smokkar gufuðu upp á aðeins 72 klukkustundum, teknir af hópi 2.800 íþróttamanna. Miðað við þessar tölur gæti virst sem íþróttafólkið setji ekki aðeins met í sinni grein, heldur einnig undir sænginni. Þegar betur er að gáð er raunveruleikinn þó annar. Allir smokkarnir sem rifnir voru út á Vetrarólympíuleikunum voru notaðir í upprunalegum tilgangi. Úthlutun smokka til Ólympíufara er rótgróin hefð sem hófst á Sumarólympíuleikunum í Seúl árið 1988. Markmiðið er að auka vitund um forvarnir gegn kynsjúkdómum. Á Ólympíuleikunum í Ríó voru smokkarnir 450.000, en á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí og Vancouver voru þeir 100.000, á meðan í Pyeongchang voru þeir 110.000. Það er heldur ekki óþekkt fyrirbæri að íþróttafólk taki smokkana með sér heim sem minjagripi eða jafnvel reyni að selja þá. En skipuleggjendur Ólympíuleikanna á Ítalíu viðurkenna gagnvart Corriere della Sera að eftirspurnin eftir smokkum á vetrarleikunum í ár hafi verið meiri en búist var við.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Fleiri fréttir Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Dagskráin: Stærsta boxmót ársins á Íslandi Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Jesús áfram í Stjörnunni Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Danir munu liggja í því á Icebox Gaslýsingar, starfsöryggi og heimskt lið Hækka verðlaunafé um tuttugu prósent Sjá meira