Þegar börn læra réttindi sín – og við lærum með þeim Lilja Marta Jökulsdóttir skrifar 16. febrúar 2026 14:32 Hvað er Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna? Barnasáttmálinn var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 1989. Ástæða þess að hann var búinn til var vegna slæmra aðstæðna barna eftir stríð og þörfinni á að vernda þau. Við gerð Barnasáttmálans tók hann alls kyns breytingum áður en hann var undirritaður í þeirri mynd sem við þekkjum í dag var til að mynda bætt við greinum um þátttöku barna. Það er að segja að börn eigi að hafa áhrif á eigið líf og það sé í hlut fullorðinna að hlusta á börn. Þemu Barnasáttmálans eru Vernd, umönnun og þátttaka. Það er hlutverk allra fullorðinna að passa uppá að greinum Sáttmálans sé fylgt, það er okkar skylda, ekki barnanna. Börnin bera ekki skyldu gagnvart réttindum sínum. Þau hins vegar, eins og allir einstaklingar, eiga að bera virðingu fyrir réttindum hvers annars. Virðing er hugtak eða fyrirbæri sem virðist standa höllum fæti í samfélagi okkar í dag. Virðing fyrir hvort öðru, virðing fyrir náttúrunni, virðing fyrir eigum og svo mætti lengi telja. En hvernig kennum við virðingu? Með því að sýna hvort öðru virðingu í orði sem og í gjörðum. Við eigum ekki rétt á að ganga á hvort annað með ofbeldi hvort sem það er líkamlegt eða munnlegt. Við fullorðna fólkið eigum að vita betur og við eigum að kenna börnunum okkar að það er aldrei í lagi að sýna óvirðingu gangvart fólki, dýrum, náttúrunni né eigum. Við berum ábyrgð, það er okkar hlutverk. Í 42. grein Barnasáttmálans segir að “Stjórnvöld skulu fræða börn og fullorðna um Barnasáttmálann reglulega svo allir þekki réttindi barna”. Því fellur það í hlut okkar allra, fullorðinna einstaklinga, að passa upp á að réttindum barna sé framfylgt. Það skiptir ekki máli í hvaða hlutverki þú ert, kennari, foreldri, frístundaleiðbeinandi, stjórnmálamaður eða starfsmaður á kassa. Börn eru hluti af samfélaginu okkar og sama hvaða hlutverki eða starfi þú gegnir þá hefur það áhrif á börn. Börn hafa rétt á upplýsingum, hreinu vatni, húsnæði og mörgu öðru. Ef fullorðnir þekkja réttindi barna þá vita þeir einnig hvenær það er verið að brjóta á réttindum þeirra og geta brugðist við. Barnasáttmálinn var lögfestur á Íslandi 2013 en það virðist oft gleymast í umræðunni. Réttindaskóli og -frístund UNICEF er verkefni sem margir skólar og frístundaheimili (og félagsmiðstöðvar) eru að vinna með. Það er viðurkenning sem skóli ásamt frístundaheimili (eitt getur ekki fengið viðurkenninguna án annars) geta fengið frá UNICEF með því að vinna með markmið verkefnisins. Aðalmarkmiðið er mannréttindafræðsla í formlegri og óformlegri mynd. Kenna börnum réttindi sín, kenna börnum lýðræði með lýðræði, kenna börnum gagnrýna hugsun og virðingu. Það er það sem verkefnið gengur út á. Fagfólk skóla og frístundaheimila setja á sig réttindagleraugun, benda á hvar réttindum barna er framfylgt, búa til verkefni þar sem börn læra réttindi sín og stuðla að umhverfi þar sem þau geta stundað lýðræði og gagnrýna hugsun. Frístundaheimili eru búin að vera að vinna með lýðræði og óformlega mannréttindafræðslu í mörg ár, með kosningum um t.d. hressingu, með hugmyndakössum, með barnaráðsfundum og mörgu fleira. Með því að setja á sig réttindagleraugun erum við að benda börnunum á ástæðu þess að við gerum þetta, því við erum að passa upp á að réttindum þeirra sé framfylgt. Frístundaheimilin hafa alls kyns leiðir til að kenna börnum réttindi sín gegnum óformlegt og óformbundið nám, á meðan skólinn kennir börnunum réttindi sín gegnum formlegt nám. Þess vegna er það skylda hjá UNICEF að skóli og frístund vinni verkefnið saman. Samfélagið okkar er byggt á gildum um lýðræði, við kjósum forseta, bæjarstjórn og á Alþingi. En erum við að undirbúa börnin fyrir þessa ábyrgð sem fylgir því að kjósa og mikilvægi þess að taka þátt? Erum við sem fullorðnir einstaklingar að passa uppá að börnin séu undirbúin fyrir það sem samfélagið býður uppá? Erum við að kenna þeim gagnrýna hugsun og virðingu? Erum við að sýna hvort öðru virðingu? Miðað við fyrirsagnir í fjölmiðlum erum við fullorðna fólkið ekki nógu duglegt að sýna hvort öðru virðingu, né umhverfinu eða eigum annarra. Okkur finnst það sjálfsagt að mega gera það sem okkur sýnist, alveg sama þó það komi niður á öðrum, eins og það sé okkar réttur. En það er ekki okkar réttur að brjóta á rétti annarra. Við megum auðvitað vera með mismunandi skoðanir og gildi, en það þýðir ekki að við megum traðka á öðru fólki sem er ekki sömu skoðunar og við. Við erum öll með tilfinningar og skoðanir, en við megum ekki gera ráð fyrir því að okkar skoðun sé réttari en önnur. Áður en við segjum eða gerum eitthvað verðum við að hugsa hvort við séum að brjóta á öðru fólki. Við verðum að bera virðingu. Án virðingar er samfélagið okkar ekki að virka og við erum að sjá það með aukinni vanlíðan og ofbeldishegðun barna og ungmenna. Við verðum að gera betur. Við eigum að gera betur. Höfundur er forstöðukona í frístundaheimili og tómstunda og -félagsmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Verðgæzlustjóri ríkisins gengur aftur Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun Eldri maður fer í framboð Ragnar Sverrisson Skoðun Verðbólgukeppni Benedikt S. Benediktsson Skoðun Meira sund í Kópavogi Jónas Már Torfason Skoðun Sátt í september verður að ná til allra Sveinn Ólafsson Skoðun Sólveig Anna um stöðu verkafólks innan eða utan ESB Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Vill meirihlutinn í Reykjavíkurborg ekki hlusta á íbúa? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Stefna í fíkniefnamálum á villigötum? Helgi Gunnlaugsson Skoðun Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Í þágu heimilanna… utan ESB Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Chardonnay á Sólvallagötu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg en ómissandi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum! María Pálsdóttir skrifar Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar Skoðun Meira sund í Kópavogi Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Stefna í fíkniefnamálum á villigötum? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sátt í september verður að ná til allra Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Eldri maður fer í framboð Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Kærleikur og umburðarlyndi vinstrimanna Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Verðgæzlustjóri ríkisins gengur aftur Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Vöndum okkur Ingibjörg Ólöf Isaksen skrifar Skoðun Verðbólgukeppni Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir skrifar Skoðun Frístundaheimili eru grunnþjónusta Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Vill meirihlutinn í Reykjavíkurborg ekki hlusta á íbúa? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íbúasamráð í sveitarfélögum Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Raunverulegt val fyrir foreldra í Hafnarfirði Signý Jóna Tryggvadóttir skrifar Skoðun Þröngt mega sáttir? Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Ungt fólk, sjávarútvegur og framtíð íslensks efnahagslífs Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ælt við dæluna Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Sólveig Anna um stöðu verkafólks innan eða utan ESB Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þurfum við ný lyf? Ragnhildur Reynisdóttir skrifar Skoðun Treður hið opinbera sér í hleðslugatið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Það þarf kjark til að byggja bæ til framtíðar - Kópavogur er í sókn Leifur Andri Leifsson skrifar Skoðun Viska stéttarfélag: Sameinuð og skynsöm rödd til framtíðar Sigrún Einarsdóttir skrifar Skoðun Fyrir enn betri Akureyrarbæ Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir Skoðun
Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar
Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir skrifar
Skoðun Kominn tími á samfélagssáttmála um leikskóla eins og á hinum Norðurlöndunum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar
Skoðun Það þarf kjark til að byggja bæ til framtíðar - Kópavogur er í sókn Leifur Andri Leifsson skrifar
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir Skoðun