Fótbolti

Bein út­sending: Hópur fyrir leiki á móti heims- og Evrópumeisturunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir og Sandra María Jessen eru báðar að gera flotta hluti í þýska boltanum. 
Glódís Perla Viggósdóttir og Sandra María Jessen eru báðar að gera flotta hluti í þýska boltanum.  Getty/Pat Elmont

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, tilkynnir í dag hóp sinn fyrir fyrstu landsleiki ársins sem jafnframt eru fyrstu leikir íslensku stelpnanna í undankeppni HM í Brasilíu 2027.

Þorsteinn hittir blaðamenn í Laugardalnum og svarar spurningum um hópinn  sinn en fram undan eru útileikir á móti heimsmeisturum Spánar og Evrópumeisturum Englands.

Líklega erfiðasti gluggi sögunnar fyrir íslenskt landslið enda eru stelpurnar okkar að mæta tveimur ríkjandi meisturum á útivelli. England vann Evrópumeistaratitilinn 2025 en þær spænsku urðu heimsmeistarar árið 2023.

Hér fyrir neðan má sjá beina útsendingu frá fundinum en hann hefst klukkan 13.15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×