Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Bjarki Sigurðsson skrifar 11. febrúar 2026 12:07 Kolbrún Benediktsdóttir er sendisaksóknari Íslands hjá Eurojust. Vísir/Vilhelm Algengt er að glæpasamtökum sé stýrt úr öðru ríki en þar sem starfsemin sjálf fer fram að sögn saksóknara hjá Eurojust. Að geta deilt rannsóknargögnum milli landa hafi skipt sköpum við að uppræta glæpahring sem smyglaði eiturlyfjum til Íslands.
Í síðustu viku voru ellefu handteknir hér á landi í aðgerðum lögreglunnar við að uppræta alþjóðleg glæpasamtök sem stóðu að fíkniefnainnflutningi frá Suður-Ameríku til Íslands. Þrettán til viðbótar voru handteknir í Litáen, Spáni og Danmörku, þar af fjórir vegna handtökutilskipunar frá Íslandi. Þeir fjórir verða því framseldir hingað til lands. Funduðu í Haag Kolbrún Benediktsdóttir sendisaksóknari og Stefán Sveinsson lögreglumaður starfa hjá Refsivörslusamvinnustofnun Evrópusambandsins í Haag, Eurojust, og komu að skipulagningu aðgerðanna. Kolbrún segir það hafa skipt sköpum að geta deilt rannsóknargögnum milli landa. „Við erum búin að hittast nokkrum sinnum á sameiginlegum fundum hér í Haag þar sem allir sem vinna að málinu fara yfir gang mála. Svo endaði það með sameiginlegum aðgerðardegi í síðustu viku þar sem niðurstaðan var þessi,“ segir Kolbrún. Færið músina yfir löndin eða smellið á þau í síma til að sjá fjölda handtekinna. Stíga sín fyrstu skref Kolbrún tók til starfa hjá Eurojust fyrir tæpum tveimur árum en fram að því hafði Ísland ekki saksóknara þar. „Við erum að stíga okkar fyrstu skref í þessum sameiginlegu rannsóknarteymum. Þetta gekk mjög vel og við sjáum það að ef við ætlum að standa í þessu, að rannsaka og reyna að uppræta skipulagða brotastarfsemi, þá verðum við að vera virk í alþjóðlegu samstarfi,“ segir Kolbrún. Stýra í gegnum internetið Lögregla telur sig hafa höfuðpaurinn í haldi en hefur ekki staðfest í hvaða landi hann var handtekinn. Kolbrún segir algengt í skipulagðri glæpastarfsemi að menn búi allt annars staðar en meginþungi starfseminnar fer fram. „Með netinu og breyttri heimsmynd er þetta mjög einfalt. Menn koma sér fyrir þar sem er best fyrir þá að vera og geta svo stýrt þessu með tækninni,“ segir Kolbrún.
Lögreglumál Fíkniefnabrot Evrópusambandið Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson, bókun 35 og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira