Tárin flæddu þegar Leerdam tróð upp í gagnrýnendur Sindri Sverrisson skrifar 10. febrúar 2026 07:55 Jutta Leerdam átti magnað kvöld í Mílanó í gærkvöld og Jake Paul var auðvitað stoltur. Samsett/Getty Eftir að hafa mátt þola gagnrýni og leiðindi á samfélagsmiðlum svaraði hollenska skautastjarnan Jutta Leerdam fyrir sig á svellinu í gærkvöld þegar hún vann 1.000 metra skautahlaup á nýju Ólympíumeti.
Skautahöllin í Mílanó var stappfull af fólki sem sá Leerdam ná ótrúlegum hraða og tryggja sér Ólympíugull. Tilfinningarnar voru augljóslega miklar og tárin streymdu niður kinnar Leerdam sem hefur verið úthúðað í aðdraganda leikanna og sögð haga sér eins og díva, með því til dæmis að ferðast með einkaþotu. Athyglin á Leerdam er enn meiri en ella vegna sambands hennar við YouTube-stjörnuna og boxarann Jake Paul sem tugir milljóna fylgja á samfélagsmiðlum. Paul og fjölskylda Leerdam voru að sjálfsögðu í Mílanó í gærkvöld og tárin voru ekkert færri hjá þeim þegar þau urðu vitni að Leerdam vinna sitt fyrsta Ólympíugull, eftir að hafa fengið silfur í sömu grein fyrir fjórum árum. Norski ríkismiðillinn NRK spurði Leerdam hvernig hefði verið að hafa sitt fólk til að fagna með á þessari stundu: „Það hefur alla þýðingu fyrir mig. Þau vita hversu mikla vinnu ég legg á mig og hversu mikið ég hef grátið. Alla pressuna sem ég hef sett á sjálfa mig og undirbúninginn fyrir þetta augnablik. Allt sem ég hef lagt í þessa íþrótt. Ég trúi þessu ekki,“ sagði Leerdam. we just witnessed one of the most important sporting moments ever. the doc will tell. words cant describe how proud of you i am. pic.twitter.com/yfoM5OA4Ef— Jake Paul (@jakepaul) February 9, 2026 Paul var augljóslega stoltur af sinni konu og skrifaði á Twitter: Juttttttttttaaaaaaaa. Ég get ekki hætt að gráta. Þú kláraðir þetta, ástin. Ólympíugull. Guð er stór og það ert þú líka.“ Hann bætti svo við: „Við vorum að verða vitni að einu mikilvægasta íþróttaaugnabliki sögunnar. Gögnin munu sýna það. Ég get ekki lýst því hversu stoltur ég er.“
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Fleiri fréttir HM-dómarinn sem var rekinn heim fékk hetjumóttökur Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Sjá meira