Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. febrúar 2026 20:21 Theodór Ragnar Gíslason, stofnandi Defend Iceland. Vísir/Baldur Stofnandi og framkvæmdastjóri Defend Iceland bjó til gervigreindarútgáfu af rödd Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Hann bjó til gervi-Höllu fyrir öryggisráðstefnu og til að sýna hversu auðvelt er að falsa raddir annarra. Umræða hófst eftir að lögregla frétti af fölskum símtölum í nafni fyrrverandi ríkislögreglustjóra. „
Það kemur fólki rosalega á óvart hversu einfalt það er að geta þetta og í raun og veru, íslenskan hefur verið okkar helsta vörn hingað til, en það er bara alveg horfið. Hún er kannski ekki fullkomin en hún er nánast fullkomin,“ segir Theodór Ragnar Gíslason, framkvæmdastjóri og stofnandi Defend Iceland, um gervigreindartækni sem líkir eftir röddum annarra. Slík tækni komst í umræðuna eftir að lögreglan varaði við símtölum frá aðila sem þóttist vera og hljómaði eins og Sigríður Björk, fyrrverandi ríkislögreglustjóri. Á vefsíðu Defend Iceland segir að þar starfi siðferðislegir tölvuþrjótar sem hermi eftir aðferðum tölvuþrjóta til að finna öryggisveikleika í hugbúnaðarkerfum. Í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis sýndi Theodór gervigreindartækni þar sem hann hermdi eftir rödd Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Í viðtalinu hér fyrir neðan er hægt að heyra í gervi-Höllu sem Theodór bjó til. Hann notaði einnig tæknina til að líkja eftir rödd Auðuns Georgs, þáttastjórnanda Reykjavík síðdegis. „Ég hef smíðað verkfæri í kringum þetta fyrir öryggisvitundarnámskeið sem við höfum stundum haldið og bara til að sýna það af því við erum að vinna heilmikið í gervigreindartækninni hjá okkur fyrir tölvuárásir og þetta er mjög einfalt.“ Verði að vera hægt að vinna með tæknina „Eins og í öllum öryggismálum þá er helsta vörnin öryggisvitund og fræðsla. Ég hef þó trú á að alveg sama hvort þú sért tæknimaður eða algjör nörd eins og ég í netöryggi, eða bara venjuleg manneskja, þá þurfum við að fræða fólk um að þetta sé hægt,“ segir Theodór. „Sem öryggisvitund fyrst og fremst gerði ég þetta fyrir mömmu mína og pabba, þeim fannst þetta alveg ótrúlegt því ég klónaði mína eigin rödd og tók símtal þar sem ég hringdi í mömmu mína.“ Theodór vill vekja umræðuna um áhrif slíkrar tækni en biðlar til fólks að hafa varann á. „Það er held ég það sem má ekki gleymast í þessu, við getum ekki sett einhver lög til að banna þetta og verða þá eftir á, við verðum einhvern veginn að geta unnið með tækninni en á sama tíma.“
Gervigreind Halla Tómasdóttir Forseti Íslands Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira