Fer frá föður sínum í faðm Guðjóns Vals: „Þetta er risastórt“ Aron Guðmundsson skrifar 9. febrúar 2026 19:45 Guðjóni Val að berast frábær liðsstyrkur frá og með næsta tímabili Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni. Mynd: Gummersbach Spænski landsliðsfyrirliðinn Alex Dujshebaev gengur í raðir þýska liðsins Gummersbach eftir yfirstandandi tímabil og mun þar spila undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar.
Frá þessu er greint á samfélagsmiðlareikningum Gummersbach í dag en þar með mun níu ára veru Dujshebaev hjá pólska stórliðinu Kielce líða undir lok en þar hefur hann spilað undir stjórn föður síns Talant Dujshebaev. Alex er 33 ára gamall, gífurlega reynslumikill og hefur raðað inn verðlaunum bæði með Kielce sem og spænska landsliðinu. Sex sinnum varð hann pólskur meistari og í þrígang pólskur bikarmeistari en fyrir tíma sinn hjá Kielce vann hann Meistaradeild Evrópu með Vardar frá N-Makedóníu og raðaði einnig inn lands- og bikarmeistaratitlum þar. Þá hefur hann unnið til verðlauna með spænska landsliðinu á Evrópu- og heimsmeistaramótum sem og á Ólympíuleikunum. Í tvígang hefur hann orðið Evrópumeistari með Spánverjum. Þrátt fyrir að atvinnumannaferill Alex spanni fjöldamörg ár er þetta í fyrsta sinn sem hann mun spila í þýsku úrvalsdeildinni. Hann segir samtöl sín við Guðjón Val spila lykilþátt í því að hann taki skrefið til Gummersbach. „Ég er mjög stoltur af því að ganga til liðs við félag af þessari stærðargráðu og verða hluti af metnaðarfullu verkefni hjá liði í þýsku úrvalsdeildinni. Samtöl mín við Guðjón Val og Christoph Schindler (yfirmann íþróttamála) eiga lykilþátt í ákvörðun minni. Ég er reiðubúinn til að gefa allt mitt í verkefnið svo við getum náð okkar markmiðum saman.“ Og ánægjan leynir sér ekki hjá þjálfaranum Guðjóni Val með komu Dujshebaev. „Þýska úrvalsdeildin getur látið sig hlakka til fyrir komu hans,“ segir Guðjón Valur í fréttatilkynningu Gummersbach. „Þetta er risastórt fyrir okkur, stuðningsmenn okkar og svæðið í heild sinni. Við erum stolt og glöð yfir því að hafa tryggt okkur þjónustu Alex eftir frábærar viðræður við hann.“ Gummersbach er sem stendur í 6.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar þegar nítján umferðir hafa verið leiknar og er enn í baráttunni um Evrópusæti.
Þýski handboltinn Mest lesið Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Fótbolti „Það sem hræðir mann er það sem er mest þess virði að gera“ Sport Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna Fótbolti „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ Fótbolti Hermaðurinn Haukur í Stólana Körfubolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira